Olli „ólýsanlegum og ófyrirgefanlegum“ kvölum

Vinkona brota­þola seg­ist hafa beðið eftir tæki­færi til að láta í sér heyra í 15 ár vegna þess sem Hjalti Sigurjón Hauksson gerði henni. Stjórn­völd geri lítið úr öllu því sem brota­þoli hafi gengið í gegnum.

Olli „ólýsanlegum og ófyrirgefanlegum“ kvölum

Maðurinn sem var dæmdur fyrir að nauðga stjúp­dóttur sinni nær dag­lega í 12 ár heitir Hjalti Sigurjón Hauksson og er 57 ára gam­all. Hjalti fékk upp­reist æru þann 16. sept­em­ber, sama dag og barn­a­níð­ing­ur­inn Robert Downey. 

Andrea Eyland, vin­kona brota­þola til tæpra 20 ára, ávarpar stjórn­völd, for­seta Íslands og brota­mann­inn í færslu sem hún birtir á Facebook-síðu sinni í dag. 

„Hjalti Hauksson. Kval­irnar sem þú hefur valdið fólki sem ég elska eru ólýs­an­legar og ófyr­ir­gef­an­legar,“ skrifar hún.

„Ég hef beðið eftir tæki­færi í 15 ár til að láta í mér heyra, til að vara almenn­ing við þér. Stjórn­völd, for­seti, þið eruð i mínum augum litlu skárri.“ 

Stundin ræddi við Andreu í dag, en Andrea hefur þekkt brota­þol­ann frá því um það leyti sem hún fór að heiman.

„Ég veit eig­in­lega ekki hvað skal segja, annað en það sem ég gerði á Facebook,“ segir Andrea í sam­tali við og Stundina og bætir við: „Með því að sæma Hjalta Sigurjón Hauksson því sem stjórn­völd kalla „óflekkað mann­orð“ er gert lítið úr öllu því sem þol­and­inn hefur gengið í gegnum, þeim vít­iskvölum sem hún hefur liðið nán­ast alla ævi, frá fimm ára aldri og gerir enn. Að hann sé nafn­greindur er eina vopnið sem almenn­ingur hefur gegn honum og mönnum eins og honum. Við sem sam­fé­lag hljótum að krefj­ast þess að reglum um veit­ingu upp­reist æru verði breytt.“

Hjalti Hauksson var dæmdur í fimm og hálfs árs fang­elsi árið 2004 auk þess sem honum var gert að greiða brota­þola eina og hálfa milljón í miska­bætur. Um er að ræða þyngsta dóm sem fallið hafði vegna kyn­ferð­is­brota gegn barni á þessum tíma, en Hæsti­réttur taldi mann­inn hafa mis­notað frek­lega vald sitt yfir stúlkunni sem stjúp­faðir, brotið ítrekað og gróf­lega gegn henni og valdið henni djúp­stæðum skaða. Hann fékk upp­reist æru þann 16. sept­em­ber síð­ast­lið­inn, sama dag og Robert Downey, sem var dæmdur fyrir að brjóta kyn­ferð­is­lega gegn fimm stúlkum, meðal ann­ars meðan hann var um sex­tugt en stúlk­urnar á ung­lings­aldri. 

Bergur Þór Ing­ólfs­son, faðir stúlku sem Robert Downey braut gegn, sagði í dag að full­trúar rík­is­stjórn­ar­innar í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hefðu neitað að sinna skyldum sínum og þannig snúið baki við þolendum kyn­ferð­is­of­beldis.  Vísaði hann til þess að stjórn­ar­liðar gengu út af fundi nefnd­ar­innar þann 14. ágúst þegar upp­lýs­ingar um Robert Dow­­ney og veit­ingu upp­reist æru hans voru til með­ferðar. „Formaður nefnd­ar­innar segir í sífellu að verri brot hafi verið framin. For­sæt­is­ráð­herra finnst að ekki skuli gert upp á milli ein­stakra brota þegar veitt er upp­reist æru. For­set­inn skrifar upp á óflekkað mann­orð barn­a­níð­inga í kippum því stjórn­ar­skráin skipar honum að gera það,“ skrif­aði Bergur í dag. „Upp­lýs­ingum er haldið frá brota­þolum og öllum almenn­ingi. Það er löngu komið nóg. Fáum allar upp­lýs­ingar á borðið og nýja stjórn­ar­skrá í kjöl­farið til að vernda venju­legt fólk gegn þessu óskilj­an­lega rugli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynferðisbrot

Myndir af neyðarmóttöku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“
FréttirKynferðisbrot

Myndir af neyð­ar­mót­töku sendar áfram: „Ekki myndir sem ég vildi sjá af sjálfri mér“

Lögreglu var heim­ilt að senda myndir sem teknar voru af Guðnýju S. Bjarna­dóttur á neyð­ar­mót­töku fyrir þolendur kyn­ferð­is­of­beldis á verj­anda manns sem hún kærði fyrir nauðgun. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar. Guðný segir ótækt að ger­endur í kyn­ferð­is­af­brota­málum geti með þessum hætti fengið aðgang að við­kvæmum myndum af þolendum. „Þetta er bara staf­rænt kyn­ferð­is­of­beldi af hendi lög­regl­unnar.“

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár