Maðurinn sem nauðgaði stjúpdóttur sinni í tólf ár kærði mann fyrir nafnbirtingu á sér

„Þetta eru sam­tök um að eyði­leggja líf ann­ars fólks.“ seg­ir mað­ur­inn sem nauðg­aði stjúp­dótt­ur sinni „nær dag­lega“ í tólf ár, en hann kærði sam­tök­in Stönd­um sam­an fyr­ir að birta nafn hans. Hann fékk upp­reist æru þann 16. sept­em­ber.

Maðurinn sem nauðgaði stjúpdóttur sinni í tólf ár kærði mann fyrir nafnbirtingu á sér

Maður, sem misnotaði stjúpdóttur sína í 12 ár, en var sæmdur óflekkuðu mannorði af forseta Íslands í fyrra, kærði aðstandendur vefsíðunnar Stöndum saman til lögreglunnar árið 2013 fyrir að birta upplýsingar um sig. Þetta gerði hann í kjölfar þess að einn af umsjónarmönnum Facebook-síðunnar Við birtum nöfn og myndir af dæmdum barnaníðungum hafði samband við rútufyrirtæki sem maðurinn vann hjá og greindi frá því að hann væri barnaníðingur. Í kjölfarið missti maðurinn vinnuna. 

„Hann fór til lögreglunnar og lagði fram kæru en það var aldrei neitt gert í málinu, enda ekkert ólöglegt verið gert, en greyið upplifði sig sem fórnarlamb,“ segir Skúli Steinn Vilbergsson í samtali við Stundina, en hann var einn af forsprökkum samtakanna Stöndum saman á sínum tíma.

„Ég fékk uppreist æru eftir að hafa verið rekinn 13 sinnum úr vinnu,“ sagði maðurinn þegar Stundin ræddi við hann fyrr í vikunni. „Þetta Stöndum saman er mesta kjaftæði sem ég hef heyrt á ævinni. Þetta eru samtök um að eyðileggja líf annars fólks.“ 

Maðurinn var dæmdur í fimm og hálfs árs fangelsi árið 2004 fyrir að hafa nauðgað stjúpdóttur sinni nær daglega frá því hún var um 5 ára gömul þar til hún var tæplega 18 ára. Um er að ræða þyngsta dóm sem fallið hafði vegna kynferðisbrota gegn barni á þessum tíma, en Hæstiréttur taldi manninn hafa misnotað freklega vald sitt yfir stúlkunni sem stjúpfaðir, brotið ítrekað og gróflega gegn henni og valdið henni djúpstæðum skaða. Hann fékk uppreist æru þann 16. september síðastliðinn, sama dag og Robert Downey, sem var dæmdur fyrir að brjóta kynferðislega gegn fimm stúlkum, meðal annars meðan hann var um sextugt en stúlkurnar á unglingsaldri.

Óskar Ingi Þorgrímsson, stofnandi Facebook-síðunnar, greindi frá því í samtali við Vísi árið 2014 að hann hefði fengið upplýsingar um að maðurinn starfaði sem rútubílstjóri og starfaði í kringum börn. „Ég hafði samband við fyrirtækið sem hann starfaði hjá og greindi þeim frá því að hann hefði setið inni fyrir barnaníð.“ Í bréfi sem Óskari barst frá ríkissaksóknara nokkrum mánuðum síðar kom fram að gögn málsins hefðu verið yfirfarin og málið væri ekki líklegt til sakfellingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Veðurfræðingur á sumardaginn fyrsta: „Vorið er komið“
4
Innlent

Veð­ur­fræð­ing­ur á sum­ar­dag­inn fyrsta: „Vor­ið er kom­ið“

Ein­ar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ing­ur fagn­ar sum­ar­deg­in­um fyrsta með því að lýsa vor­ið kom­ið. Sumar­ið kem­ur hins veg­ar í skref­um. Eng­in leið er að spá fyr­ir um hvernig veðr­ið verð­ur í sum­ar, en síð­asta sum­ar var óvenju hlýtt og þar áð­ur var óvenju kalt. Hlýn­un sjáv­ar hef­ur áhrif á veð­ur­far, svo fylgj­ast þarf með breyt­ing­um á AMOC-haf­straumn­um og tala máli Ís­lend­inga á al­þjóða­vett­vangi.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Kynlífsverkafólk deilir reynslu sinni: „Glæpavæðing einangrar mann“
1
Úttekt

Kyn­lífs­verka­fólk deil­ir reynslu sinni: „Glæpa­væð­ing ein­angr­ar mann“

Fjór­ir ein­stak­ling­ar sem unn­ið hafa mis­mun­andi kyn­lífs­vinnu á Ís­landi segja þörf á að breyta lög­um og laga við­horf sam­fé­lags­ins. Ein­angr­un fólks sem vinn­ur slíka vinnu sé hættu­leg. Í dag hafa þau kom­ið upp sínu eig­in tengslaneti til að styðja hvert ann­að og passa upp á ör­yggi og mann­rétt­indi kyn­lífs­verka­fólks og þo­lenda vænd­is.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár