Banki Margeirs slapp við skuld við ríkið með viðskiptum í skattaskjóli

Margeir Pét­urs­son, fjár­festir og stofn­andi MP bank­ans sál­uga, var umsvifa­mik­ill við­skipta­vinur panömsku lög­manns­stof­unnar Mossack Fonseca um ára­bil sam­kvæmt Panama­skjöl­unum. Aflands­fé­lag í huldu eign­ar­haldi átti lyk­il­þátt í við­skiptafléttu sem fól í sér að banki í eigu Margeirs gerði upp skuld við íslenska ríkið eftir að aflands­fé­lagið keypti kröfur af íslenskum líf­eyr­is­sjóðum.

Banki Margeirs slapp við skuld við ríkið með viðskiptum í skattaskjóli
Margeir Pét­urs­son Stofn­andi MP banka var umsvifa­mik­ill í skatta­skjóls­við­skiptum. Mynd: Margeir Pétursson



Úkra­ínskur banki sem fjár­festir­inn og skák­meist­ar­inn Margeir Pét­urs­son á og stýrir kom sér hjá því að greiða 400 millj­óna króna skuld við þrotabú Spari­sjóða­bank­ans með við­skiptum við aflands­fé­lag á Tortólu sem heitir Falona Enter­prises Inc. Eign­ar­hald þess er á huldu.

Mála­ferli um skuld­ina hafa staðið yfir um ára­bil í Úkraínu og hafn­aði hæsti­réttur þar í landi end­ur­upp­töku­kröfu þrota­bús­ins, sem heitir SPB ehf., í mál­inu í mars á þessu ári. Upp­lýs­ingar um umrætt Tortóla­fé­lag koma fram í Panama­skjöl­unum svoköll­uðu þar sem er að finna gögn um nokkur Tortóla­fé­lög sem Margeir Pét­urs­son stýrði. Eign­ar­hald á Falona Enter­prises kemur hins vegar ekki fram í gögn­unum, en ljóst er að félagið átti lyk­il­þátt í því að forða bank­anum frá kröfum sem á end­anum voru á ábyrgð íslenska rík­is­ins.

Aflandsfélag keypti kröfur af lífeyrissjóðum

Deilan snýst um það hvort bank­anum, Bank Lviv, hafi verið heim­ilt að nota …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

Myndband10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár