Þarf að endurskrifa alla sögu mannsins?

Illugi Jök­uls­son skrifar um mjög óvæntan forn­leifa­fund í Ástralíu.

Þarf að endurskrifa alla sögu mannsins?
Mirarr-maður skoðar ævafornar myndir for­mæðra sinna og -feðra. Myndin er af Twitter-reikn­ingi Gundjeihmi Jabiru.

Nyrst í Ástralíu er þjóð­garð­ur­inn Kakadu. Hann er gríð­ar­lega stór, sam­svarar nærri 20 pró­sentum af stærð Íslands. Og nú hafa fund­ist þar munir sem lík­lega verða til þess að hugsa þarf upp á nýtt alla sögu manns­ins.

Eftir ýmsar nýlegar upp­götv­anir - meðal ann­ars að mann­teg­undir hafi verið fleiri í árdaga en talið hefur verið - þá voru vís­inda­menn orðnir nokkuð sam­mála um þá atburða­rás sem hér greinir:

Fyrir um 100.000 árum voru nokkrar mann­teg­undir í heim­inum - Neand­er­dals­menn í Evrópu, Den­isovar og Sólómenn í Asíu, Homo Sapiens í Afríku. Og vafa­laust fleiri.

Þessar teg­undir voru allar komnar af Suð­ur­öpum í Afríku, þær voru ósköp svip­aðar, stóðu allar á nærri því sama tækni­stigi, og við - Homo Sapiens - vorum frænd­fólki okkar á engan hátt fremri.

Fyrir um 70.000 árum gerð­ist hins vegar eitt­hvað. Einhver stökk­breyt­ing í heila­starf­semi Sapiens varð til þess að hann fór að hugsa hlut­ina upp á nýtt í bók­staf­legri merk­ingu.

Hvað þetta var nákvæm­lega er ekki vitað. Sumir vilja raunar ekki tala um eina ein­staka stökk­breyt­ingu, heldur fremur „þró­un­ar­stökk“. Það verður þó að liggja milli hluta hér.

Altént gerð­ist eitt­hvað ótrú­lega hratt.

Kannski var það fólgið í auk­inni getu til að tjá sig og eiga sam­skipti. Kannski sner­ist það frekar um að draga álykt­anir og hugsa fram í tím­ann.

Hvað sem því líður, þá varð þetta þró­un­ar­stökk eða stökk­breyt­ing til þess að Homo Sapiens tók helj­ar­stökk fram úr frændum sínum og frænkum.

Mjög fljót­lega eftir að þetta gerð­ist lagði hann upp frá Afríku og dreifð­ist um heim­inn. Einna fyrst virð­ist hann hafa lagt af stað með­fram ströndum Asíu frá Arab­íu­skaga og um Indland og inn í Suð­austur-Asíu.

Þaðan komst hann svo furðu fljótt yfir til Ástralíu og var mættur þangað fyrir 45.000 árum eða svo.

Að fara alla þá vega­lengd á aðeins 20.-25.000 árum var vel af sér vikið.

Fljót­lega eftir að mað­ur­inn kom til Ástralíu þá dó þar út mikil fána risa­vax­inna poka­dýra af ýmsu tagi. Og segir sig sjálft að Sapiens hlýtur að vera sterk­lega grun­aður um að hafa banað dýr­unum.

Þessi atburða­rás er til dæmis lögð til grund­vallar í bók­inni „Sapiens“ eftir ísra­elska sagn­fræð­ing­inn Yuval Noah Harari sem ýmsir hafa lesið.

Og henni er líka fylgt í þess­ari flækju­sögu­grein hér sem ég skrif­aði í Frétta­blaðið fyrir tveimur árum.

En nú hafa forn­leifa­fund­irnir í Kakadu komið þess­ari sögu í algjört upp­nám.

Eftir miklar rann­sóknir hafa munir, sem þar fund­ust, verið tíma­settir þannig að þeir séu alls ekki yngri en 65.000 ára gamlir, og ef til vill séu þeir allt að 80.000 ára gamlir.

Risa­poka­dýreins og þetta ráf­uðu um sléttur Ástralíu þegar menn komu þar fyrst.

Þetta þýðir ýmis­legt. Ef menn hafa verið komnir til Ástralíu svo snemma hafa þeir til dæmis búið ásamt með og innan um stóru poka­dýrin miklu lengur en áður hefur verið talið. 

Það þýðir að það er ekki endi­lega beint sam­hengi milli komu manns­ins og útrým­ingar poka­dýr­anna.

Þetta er samt ekki mesta bylt­ingin sem hinir nýju forn­leifa­fundir kunna að valda.

Því hvað verður um hina snyrti­legu kenn­ingu um stökk­breyt­ing­una í Afríku fyrir 70.000 árum (eða þró­un­ar­stökkið) - sem olli því að hugsun manns­ins dýpkaði svo mjög og hann æddi af stað í ferða­lög - ef það kemur svo í ljós að Homo Sapiens var þá þegar kom­inn til Ástralíu?!

Þetta er ekki bara spurn­ing um að færa marg­nefnda stökk­breyt­ingu aftur um 30.000 ár eða svo, þannig að hún hafi orðið fyrir 100.000 árum og menn hafi þá lagt af stað frá Afríku.

Heldur blasir þá við spurn­ingin:

Af hverju höfum við fram að þessu ekki fundið nein merki um þessa blessuðu stökk­breyt­ingu á tíma­bil­inu fyrir 100.000-70.000 árum?

Hafa þau ein­fald­lega farið fram­hjá okkur?

Eða var fram­gangur Homo Sapiens afleið­ing af þróun, sem fór fram víða um heim, en ekki ein­stöku stökki?

Og áttu hinar mann­teg­und­irnar - frænd­fólkið góða - kannski meiri þátt í þeirri þróun en talið hefur verið?

Spenn­andi tímar í vændum í for­sögu­fræðum, svo mikið er víst!

Afkom­endur frum­byggja á Kakadu-svæð­inu eru alt­ént hæstá­nægðir en forn­leifa­upp­gröft­ur­inn fór fram í góðri sam­vinnu við þá.

Á vef Guardian er haft eftir einum tals­manni Mirarr-manna, sem þar búa:

„Við viljum gjarnan segja fólki að við höfum verið hér lengi - segja öllum Balanda [allir aðrir en frum­byggjar Ástralíu] þær sögur, að [okkar] fólk hafi verið hér í mjög langan tíma.“

Það má sann­ar­lega til sanns vegar færa, og að því er virð­ist mun lengur en talið hefur verið.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár