Formaðurinn skuldar yfir 20 milljónir í opinber gjöld

Stjórn­ar­tíð Ólafs Arn­ar­sonar hjá Neyt­enda­sam­tök­unum hefur ein­kennst af úlfúð og erjum á milli stjórn­ar­innar og for­manns­ins. Ólafur hefur sagt af sér sem for­maður, en boðar mögu­lega end­ur­komu og kennir stjórn sam­tak­anna um hvernig fór. Stjórnin hefur gagn­rýnt hann fyrir að koma fjár­hag sam­tak­anna í hættu. Sjálfur skuldar Ólafur yfir tutt­ugu millj­ónir króna í skatta.

Formaðurinn skuldar yfir 20 milljónir í opinber gjöld

Ólafur Arnarson, hag­fræð­ingur og rit­höf­undur, úti­lokar ekki end­ur­komu til Neyt­enda­sam­tak­anna, eftir að hafa sagt af sér í kjöl­far harðrar gagn­rýni og aðgerða stjórnar sam­tak­anna vegna óhóf­legra útgjalda hans.

Sjálfur segir Ólafur í yfir­lýs­ingu að sam­tökin hafi „flotið hægt og bít­andi að feigðar­ósi“ og skorti tekju­öflun, en hann hefur sætt hörðum ákúrum fyrir per­sónu­leg fjár­mál sín og skuldar hann, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar, nú yfir 20 millj­ónir króna í skatta og opin­ber gjöld.

Ólafur vakti athygli árið 2009 með bók­inni Sofandi að feigðar­ósi, þar sem hann gagn­rýndi harð­lega íslensk stjórn­völd og sam­fé­lag fyrir að bregð­ast ekki við aðsteðj­andi efna­hags­vanda í aðdrag­anda banka­hruns­ins. Ólafur er fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Sjálf­stæð­is­flokks­ins og aðstoð­ar­maður mennta­mála­ráð­herra, en starf­aði lengi í fjár­mála­geir­anum. Hann var kjör­inn for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna þann 22. októ­ber í fyrra með um 56 pró­sent atkvæða og lutu fjórir aðrir fram­bjóð­endur í lægra haldi.  

Strax í vik­unni fyrir kosn­ingar fóru þó spjótin að bein­ast …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Neytendamál

FréttirNeytendamál

Greiðslu­byrðin tvö­fald­að­ist um mán­að­ar­mót: „Það má ekk­ert koma upp á“

Greiðslu­byrði af hús­næð­is­láni Gígju Skúla­dóttur tvö­fald­að­ist síð­ustu mán­að­ar­mót. Þegar búið er að greiða önnur mán­að­ar­leg gjöld stendur hún eftir með lítið á milli hand­anna til þess að verja í grunn nauð­synjar á borð mat. Hún segir að lítið megi út af bregða án þess að hún lendi í fjár­hags­vand­ræðum. Hún spyr hvernig venju­legu fólki tak­ist að lifa lífi sínu í núver­andi efna­hags­á­standi.
FréttirNeytendamál

Lagt til að ósáttir flug­far­þegar greiði Sam­göngu­stofu 5.000 króna mál­skots­gjald

Drög að nýrri reglu­gerð um rétt­indi flug­far­þega fóru nýverið í sam­ráðs­gátt. Samkvæmt drög­unum er lagt til að kvar­tendur greiði Sam­göngu­stöfu 5.000 króna gjald fyrir máls­með­ferð í ágrein­ings­málum sem skotið er til stofn­un­ar­innar. Þá kveður ný reglu­gerð á um að Sam­göngu­stofa muni fram­vegis ekki taka við erindum vegna skemmds eða glat­aðs far­ang­urs.
FréttirNeytendamál

Fjár­sterkir ein­stak­lingar og félög keyptu upp stóran hluta nýrra íbúða

Samkvæmt tölum frá Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun fjölg­aði íbúðum í eigu lög­að­ila og ein­stak­linga sem eiga fleiri en eina íbúð um 2.300 á síð­asta ári. Á sama tíma hefur fjölgun íbúða í eigu ein­stak­linga sem aðeins eiga eina íbúð dreg­ist mikið saman und­an­farin þrjú ár. Líta þarf aftur til árs­ins 2010 til þess að sjá sam­bæri­lega þróun.
FréttirNeytendamál

Sigurður Ingi sker upp herör gegn lóða­braski

Sigurður Ingi Jóhann­es­son inn­við­a­ráð­herra til­kynnti nú fyrir skömmu á Facebook-síðu sinni að hann hafi mælt fyrir frum­varpi sem felur í sér hvata fyrir lóð­ar­hafa til að hefja upp­bygg­ingu á íbúð­ar­hús­næði án tafa eins og deiliskipu­lag gerir ráð fyrir. Til­gangur frum­varps­ins er meðal ann­ars sá að draga úr lóða­braski sem Sigurður Ingi lýsti sem „ófor­svar­an­legu athæfi“

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu