„Hvernig nær fólk endum saman í þessu landi?“ spyr Gígja Skúladóttir, hjúkrunarfræðingur og sjálfstæður atvinnurekandi, í færslu sem hún birtir á Facebook-síðu sinni.
Tilefni færslunnar er sú að á síðustu mánaðamótum tvöfölduðust mánaðarlegar afborganir af húsnæðisláni Gígju. Síðastliðinn júní losnuðu vextir af óverðtryggðu láni hennar. Á einni svipan hækkuðu mánaðarlegar afborganir hennar úr 169 þúsund krónum á mánuði í rúmar 335 þúsund krónur.
Breytingin gerir það að verkum að Gígja stendur eftir með lítið fé á milli handanna til þess að eyða í grunn nauðsynjar eins og mat og rekstur á bíl. Samtals er mánaðarleg greiðlsubyrði Gígju í kringum 530 til 560 þúsund krónur.
„Hvernig fer venjulegt fólk af því að lifa á Íslandi þegar grunnþarfirnar eru svona kostnaðarsamar? Ég skil ekki af hverju það er ekki allt brjálað, hvernig getur seðlabankastjórinn réttlætt þessar aðgerðir og þjóðin bara samþykkt þær og borgað …



















































Athugasemdir