Gleymda stríðið í Jemen

Ekki er allt sem sýn­ist varð­andi stríðið í Jemen. Guðrún Margrét Guð­munds­dóttir, mann­fræð­ingur sem eitt sinn bjó í Jemen, rýnir á bak við tjöldin og greinir helstu ástæður stríðs­átak­anna.

Gleymda stríðið í Jemen

Nú eru rúm tvö ár liðin síðan banda­lag sjö þjóða, með Sádi-Arabíu í far­ar­broddi (hér eftir kallað Banda­lagið), hófu loft­árásir á Jemen, hina blá­fá­tæku og vand­ræða­sömu nágranna Sádi-Arabíu í suðri. Fljót­lega fylgdi inn­rás land­hers í kjöl­farið. Þegar árás­irnar hófust var Jemen þegar í slæmum málum. Neyð­ar­á­stand ríkti vegna langvar­andi fátæktar, svæð­is­bund­inna átaka, matar­ó­ör­yggis og spill­ingar stjórn­valda svo eitt­hvað sé nefnt og millj­ónir manna þurftu að reiða sig á neyð­ar­að­stoð til að kom­ast af. Eins og gefur að skilja hafa svo linnu­lausar loft­árásir Banda­lags­ins og átök stríð­andi fylk­inga bætt gráu ofan á svart, svo vægt sé til orða tekið, og landið nú ein rjúk­andi rúst. Jemenar löngu orðnir bitrir og sárir og þess full­vissir að heim­inum sé skít­sama um þá. 

Hörmungar en áhugaleysi fjölmiðla

Hern­að­ar­að­gerðin hlaut nafnið Operation Decisive Storm enda gert ráð fyrir að hún stæði stutt yfir. Skot­markið auð­velt, landið veikt fyrir og hern­að­ar­legur styrkur Banda­lags­ins marg­faldur sam­an­borið við and­stæð­ing­inn. Óhætt er að segja að hið gagn­stæða hafi svo komið á dag­inn. Lítill hern­að­ar­legur árangur hefur náðst á tíma­bil­inu, Banda­lagið er fast í óvin­sælu stríði enda fall almennra borg­ara mikið og ásak­anir um stríðs­glæpi og önnur brot á alþjóða mann­úðar- og mann­rétt­inda­lögum háværar. Þrátt fyrir þetta hefur alþjóða­pressan, einkum hin vest­ræna, látið sig hörm­ungar í Jemen litlu varða og oftar en ekki vísað í hið þögla stríð, eða hið gleymda, þegar and­vara­leys­inu er lýst. 

Neyðarástand

Margir hafa undr­ast þetta and­vara­leysi því Sam­ein­uðu þjóð­irnar tala um hörm­ungar (catastrophe) til að lýsa ástand­inu í Jemen. Nær allir inn­viðir þjóð­fé­lags­ins hafa hrunið, engin mark­tæk stjórn­völd eru til staðar, flestar stofn­anir lok­aðar og fjár­mála­kerfið í rúst. Nú þegar má rekja dauða 12 þús­und kvenna, karla og barna til átak­anna. Yfir 70 pró­sent lands­manna þurfa neyð­ar­að­stoð til að draga fram lífið og rúmur fjórð­ungur hefur ekki hug­mynd um hvar þeir geti bjargað sér um næstu mál­tíð. Barn deyr úr vannær­ingu eða sjúk­dómum á tíu mín­útna fresti, sem vel hefði verið hægt að fyr­ir­byggja og alvar­legur kól­eru­far­aldur hefur blossað upp. Sam­ein­uðu þjóð­irnar vara við enn meiri hörm­ungum og hung­ursneyð ef ekki verði fljótt og örugg­lega gripið í taumana og stríðið stöðvað. 

Jemen komið til „bjargar” með Operation Decisive Storm

Þó að allir Jemenar hafi þurft að þjást af völdum stríðs­ins er yfir­lýst skot­mark ekki Jemen sem slíkt heldur Hútar, eins og Banda­lagið er óþreytt að und­ir­strika. Hútar eru hópur upp­reisn­ar­seggja sem nokkrum mán­uðum fyrir loft­árásir Banda­lags­ins hafði lagt undir sig stórt land­svæði í norð­ur­hluta lands­ins, þar með talið höf­uð­borg­ina Sanaa. Flæmt for­set­ann Abd-Rabbu Hadi og rík­is­stjórn hans á brott, rík­is­stjórn sem var hlið­holl Sádi-Arabíu. Hadi var vara­for­seti þar til hann var lát­inn taka við for­seta­emb­ætt­inu fáeinum áður af Ali Abdulla Saleh, for­seta Jemen til 33 ára, í kjöl­far þess að Ali Abdulla var hrak­inn í kröft­ugum mót­mælum, kenndum við arab­íska vorið.  

Innrás Banda­lags­ins þótti brýn, einkum í ljósi þess að Hútarnir, fjöl­mennur minni­hluta­hópur sjía-múslíma, svo­kall­aðra Zayidis-múslíma, frá Norður-Jemen, voru sagðir njóta stuðn­ings Írans, erkió­vinar Sádi-Arabíu. Þess ber að geta að um ólíka teg­und síj­ism­ans er að ræða hjá Hútum og Írönum. Slíkt valda­rán gat auð­ljós­lega ekki lið­ist í bak­garði Sádi-Arabíu, einkum þegar Íran átti í hlut. Skila­boðin yrðu að vera skýr og ekk­ert skyldi til sparað. Einsetti Banda­lagið sér að koma „lög­mætri“, stjórn aftur til valda og sýna Íran þannig mátt sig og megin. Þetta er að minnsta kosti hin opin­bera útskýr­ing sem oft­ast er borin á borð almenn­ings.

Haukur í horni

Banda­ríkja­her hefur verið Sádi-Arabíu og félögum stoð og stytta allt frá upp­hafi enda öllum hnútum kunn­ugur eftir margra ára stríð gegn hryðju­verkum þar í landi, sem mest­megnis hefur farið fram með leynd og dróna­hern­aði gegn jem­enska Al-Kaída og svo ISIS nú í seinni tíð. Hags­munir Sádi-Arabíu og Banda­ríkj­anna fara full­kom­lega saman í þessu stríði gegn Hútum, sem áttu að njóta stuðn­ings Íran, og væg­ast sagt miklir hags­munir eru í húfi.

Sádi-Arabíu, einum mik­il­væg­ast banda­manni Banda­ríkj­anna í stríð­inu gegn hryðju­verkum, stendur ógn af Hútum og Írönum. Sádi-Arabía tryggir ódýra olíu á Banda­ríkja­markað, stundar þar fjár­fest­ingar af kappi og kaupir að auki ara­grúa af vopnum fyrir svim­andi upp­hæðir. Á móti aðstoðar Banda­ríkja­her stjórn­völd Sádi-Arabíu með því að miðla upp­lýs­ingum sem aflað hefur verið með njósnum og með því að útvega vistir og elds­neyti og þjálfun í notkun á banda­rískum hátækni­vopnum. 

Proxy stríð Sádi-Arabíu gegn Íran?

Eins og minnst hefur verið á er stríð­inu oft­ast lýst, einkum í vest­rænum fjöl­miðlum, sem trúflokka­erjum á milli súnní-meiri­hlut­ans og sjía-minni­hlut­ans í Jemens eða sem stað­gengla­stríði á milli Sádi-Araba og Írana. Það stenst þó ekki nán­ari skoðun, að minnsta kosti ekki að öllu leyti. Þegar betur er að gáð hangir meira á spýt­unni, eins og algengt er þegar stríðs­rekstur er ann­ars vegar. 

Sumum þáttum er haldið leyndum og öðrum ýtt fram. Ljóst er að Sádar brenna ekki af lýð­ræð­is­ást fyrir hönd nágranna sinna og eru til­búnir að fórna miklu til að Abdrabbuh Mansur Hadi, for­seti, kom­ist aftur til valda. Aftur á móti er upp­reisn gegn einum ein­ræð­is­herra og valda­el­ítu við Persafló­ann er ógn við þá alla. Tengslin við Íran eru því að mestu fyr­ir­sláttur enda voru sam­skipti og sam­vinna Húta og Írana ekki nein að ráði, að minnsta kosti ekki fyrr en átökin brut­ust út. Það er algjör nýlunda að Hútar í Jemen gangi um með spjöld með slag­orð­unum: „Death to America“, „Death to Israel,“ sem eru kunn­ug­leg stef frá Íran, þótt það tíðk­ist nú.

Sunní og sjítar hafa þar að auki lifað í sátt og sam­lyndi að mestu, hlið við hlið í hund­ruð ára og spennan á milli trúflokka því svo til ný af nál­inni þar í landi. Núver­andi tog­streita frekar til­komin vegna stríðs­ins sem skapar og elur á sundr­ungu. Hinn almenni Jemeni stendur eftir for­viða og spyr sig hvað hafi eig­in­lega gerst. Öllu hafi verið snúið á hvolf.   

Undirliggjandi ástæður

Erfitt er að skilja raun­veru­legar eða lík­legri ástæður að baki stríðs­ins án þess að skoða það í sam­hengi við bar­áttu um yfir­ráð og völd á svæð­inu (geo-politics), stöðugar inn­an­lands­erjur, auð­lindapóli­tík (olíu, gas, gasleiðslur og aðrar flutn­ings­leiðir fyrir auð­lind­irnar) og ekki síst botn­lausa hræðslu ein­ræð­is­herra Persaflóa og banda­manna þeirra vest­an­hafs gagn­vart öllu lýð­ræð­is­brölti og öllu því sem gæti hróflað við því ábata­sama fyr­ir­komu­lagi sem fyrir er.

Flækju­stig átak­anna er mikið, línur óskýrar og erfitt að gera grein fyrir því öllu svo vit sé í. Jemen er sam­sett úr flóknum póli­tískum ein­ingum og um er að ræða fjölda ætt­flokka sem bít­ast um völd, síbreyti­leg banda­lög, etnískar línur og nú í seinni tíð hafa her­skáir öfga­hópar orðið fyr­ir­ferð­ar­miklir. Reyndar voru slíkir her­skáir hópar nær óþekktir í Jemen fyrir tíma heilags stríðs í Afganistan en hefur fjölgað með ógn­ar­hraða með til­komu leyni­stríðs gegn þeim. Þessir hópar sýna stjórn­völdum í Jemen holl­ustu eða vinna gegn þeim eins og þeim sýn­ist. 

Til að ná ein­hverri mynd á hvað er raun­veru­lega að ger­ast í Jemen þarf að skoða atburð­ina í sam­hengi hryðju­verka­stríðs­ins títt­nefnda, arab­íska vors­ins svo­kall­aða, og nýs kafla hryðju­verka­stríðs­ins, eða fram­halds­líf, sem virð­ist hafa byrjað þegar Trump steig sverð­dans­inn í Sádi-Arabíu fyrir nokkrum vikum síðan, eins og frægt er orðið. 

Bandalag Ali Abdulla og Hútanna

Ali Abdulla Saleh, sem var for­seti Jemens til 33 ára, var hrak­inn frá völdum í arab­íska vor­inu árið 2011. Fram að því höfðu Ali Abdulla og Hútarnir eldað grátt silfur saman í marga ára­tugi. Hútarnir heimt­uðu meiri aðild að völdum og Ali Abdulla gramd­ist heimtu­frekjan mjög. Svo mjög að talið er að hann hafi látið taka leið­toga Hútanna af lífi á 9. ára­tugnum. Taka skal fram að Ali Abdulla er einnig zayidi þótt hann til­heyri ekki Húta-ætt­flokknum.

Jafnvel þótt hann hafi sam­þykkt að færa Hadi, fyrr­ver­andi vara­for­seta, for­seta­stól­inn árið 2012, þoldi hann ekki lengi við í útlegð­inni í Sádi-Arabíu enda vanur að ráða lögum og lofum í Jemen og stór hluti stjórn­ar­hers­ins honum enn hlið­hollur. Hann sneri því aftur og gerð­ist einn helsti banda­maður Hútanna, fyrrum óvina sinna. 

Vopn Obama 

Dróna­stríð Obama, eins og það er oft kallað, var lengi háð í suð­ur­hluta Jemen gegn her­skáum öfga­hópum, eins og fyrr segir, og var búið að vera í gangi í mörg ár áður en Obama steig fram árið 2012 og við­ur­kenndi það, sagði það lið í gagn­sæ­is­stefnu stjórn­ar­innar. Ali Abdulla hafði sýnt aðgerð­unum mik­inn stuðn­ing enda ógn­uðu þessi öfl völdum hans.

Til marks um sam­starf hans við stjórn Obama tók hann, fyrir hönd hers­ins, á sig sök­ina á ýmsum aðgerðum sem fóru úrskeiðis. Einkum þegar hátt hlut­fall almennra borg­ara voru drepnir í dróna­árásum eða skot­mörkin voru röng. Á hinn bóg­inn studdi hann sömu öfl þegar það hent­aði honum betur.

Jemenar á þessu svæði eru sagðir þjak­aðir á sál­inni enda fastir í helj­ar­g­reipum ástands­ins um ára­bil; tog­streitu og átaka á milli stjórn­ar­hers­ins, her­skárra öfga­afla og ætt­flokka­deilna með stöðugt suð drón­anna fyrir eyr­unum, með enga hug­mynd um hvar næsta skot­mark þeirra gæti leynst. Heilu sam­fé­lögin eru sögð þjást að áfallastreituröskun og fjöldi manna, sem aldrei hefðu ann­ars haft áhuga á því, hefur geng­ist á hönd her­skárra hópa eftir að hafa misst ást­vini og upp­lifað eyði­legg­ingu í dróna­árásum. Örugg leið til að fram­leiða sífellt fleiri öfga­menn. 

Lýðræðisbrölt og kjarnorkusamningur við Íran

Mikill titr­ingur mynd­að­ist þegar frels­isandi arab­íska vors­ins sveif yfir vötnum við Persaflóa og Mið-Aust­ur­landa almennt, árið 2011. Valda­stöðu og -jafn­vægi svæð­is­ins var ógnað og haf­ist var handa við að kveðja niður and­ófið með öllum til­tækum ráðum. Sádi-Arabía sendi sem dæmi her til að aðstoða gegn upp­reisn­aröflum í Bahrain og horfði for­viða í suð­ur­átt á lýð­ræð­istil­burði nágrann­ana í Jemen eftir að Ali Abdulla hafði verið komið frá völdum. Ólíkir hópar, sem tekið höfðu þátt í bylt­ing­unni þar í landi, sátu saman og ræddu gerð nýrrar stjórn­ar­skrár og hvernig hægt væri að deila völdum þannig að fleiri kæmu að stjórn lands­ins, með Húta sem virka þátt­tak­endur. Bjart­sýni og sam­staða er sögð hafa ein­kennt Jemen á þeim tíma. Stuttu síðar hófust afskipti Sádi-Arabíu, Katar og fleiri af stöð­unni í Sýrlandi af fullum krafti og Líbýa var eyðilögð svo eitt­hvað sé nefnt. Atburðir síð­ast­lið­inna ára á svæð­inu eru meira og minna tengdir hræðsl­unni við umbóta­sinna og lýð­ræð­is­öfl. 

Erindreki segir upp

Þegar Hútarnir storm­uðu yfir norð­ur­hluta Jemen og tóku hann yfir var enn von til að hleypa þeim að kjöt­kötl­unum, ef svo má segja, eða tæki­færi að deila með þeim völdum en Sádi-Arabía virt­ist áhuga­laus um slíkt.

Erind­reki Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem sá um frið­ar­um­leit­anir, benti á að samn­ingar hefðu næstum því tek­ist og friði næstum náð. Þrátt fyrir það hófu Sádi-Arabía og félagar loft­árásir þegar aðeins átti eftir að semja um eitt lyk­il­at­riði; hvaða hópur fengi for­seta­emb­ættið. Erind­rek­inn sagði af sér í mót­mæla­skyni, hneyksl­aður og reiður.

Ákafa Sádi-Araba yfir því að ráð­ast inn í Jemen má einnig rekja til kjarn­orku­samn­ings­ins sem Obama stjórnin gerði við Íran. Sádar fengu brjál­æðiskast og til að lægja öldur heim­il­aði Banda­ríkja­stjórn þeim að ráð­ast á Jemen, hina fátæku nágranna sem höfðu rætt lýð­ræði af fullri alvöru. Það mátti ekki líð­ast. 

Trump dansar sverðdansinn við Sáda

Fyrsta heim­sókn Trump utan Banda­ríkj­anna var til Sádi-Arabíu í maí síð­ast­liðnum sem þótti tákn­rænt um náið sam­band þjóð­anna. Trump, steig sverð­dans­inn með Salmann kon­ungi, aug­ljós­lega afar hrif­inn af landi og þjóð sem hann hrós­aði í hástert.

Þar fyrir utan lét hann kalla saman 50 leið­toga múslíma (sunní) ríkja til að ræða fram­tíð hryðju­verka­stríðs­ins. Nú yrðu sunní-múslímar að bind­ast banda­lagi á móti sjía-múslímum, einkum Íran. Íranir væru umfangs­mestir þegar kæmi að því að styðja og vopn­væða hryðju­verka­menn heims, þar á meðal HisbAllah. Íran styddi líka Assad for­seta í Sýrlandi sem Banda­ríkin vilja koma frá völdum. Nú yrðu súnní-múslímar og þeirra ríki að standa saman til að ráða nið­ur­lögum þeirrar ógnar.

Á leið­togum margra múslíma­ríkja mátti greina skrýt­inn svip yfir ræðu Trump,  þar sem þeir vita manna best hvaða ríki styður hryðju­verka­hópa mest allra og að sjálf hug­mynda­fræðin sé runnin undan þeirra rifjum. Sádi-Arabía fer þar fremst í flokki, að sjálf­sögðu.     

Framhaldslíf stríðsins gegn hryðjuverkum 

Nú er hægt að sjá fyrir sér Sádi-Araba og Trump sitja sveitta við að skrifa hand­rit fyrir næsta kafla hryðju­verka­stríðs­ins, fram­halds­lífs­ins; marka skýr­ari línur, skil­greina óvin­inn með meira afger­andi hætti en áður og reyna sam­tímis að fiffa til óþægi­lega atburði og mis­tök for­tíð­ar­innar um leið.

Nú eru súnní-Arabar góðir en sjítar vondir. Þannig verður reynt að bæta fyrir mis­tök Banda­ríkj­anna þarna í Írak árið 2003 þegar öllum opin­berum starfs­mönnum Bat­hista­flokks Saddam Hussain (sunní) var sagt upp og sjía-múslímar, bál­reiðum og í hefnd­ar­hug eftir langvar­andi kúgun Baadthist­inna, komið til valda í stað­inn. Þessi mis­tök urðu til þess að Íran styrkt­ist póli­tískt, Sádi-Aröbum til mik­illar mæðu. Sjá mátti aðra skýra til­raun tila ð end­ur­skrifa sög­una. Katar var sett út af sakra­ment­inu í kjöl­far heim­sóknar Trump, þar sem þeir neit­uðu að slíta sam­skiptum við Íran, og í leið­inni látnir taka á sig alla sök­ina fyrir stuðn­ing og styrki Sádi-Araba og nágranna­land­anna við hryðju­verka­öflin í Sýrlandi og víðar, sem mætti helst líkja við það að Pepsi Cola sak­aði Coca Cola um að nota of mik­inn sykur í gos­drykki. Katar var sömu­leiðis hent út úr Banda­lag­inu og her­inn rek­inn heim frá Jemen með skömm.  

Jemen er nauð­syn­legur liður í þessu fram­halds­lífi hryðju­verka­stríðs­ins; van­þróað, fátækt, flókið og vina­laust. Tvær flugur í einu höggi; ögra Íran og brjóta lýð­ræð­is­öfl á bak aftur. Jemenum var sagt að taka stríðið gegn sér ekki per­sónu­lega því það sé þeirra hagur að losna við Hútana. Sádí-Arabía sé þar til að hjálpa en ekki annað. Líklega fer Jemen að verða óspenn­andi stríð fyrir Banda­lagið sem situr á stærsta vopna­búri heims því tak­mörkuð áskorun felst í því að sparka stöðugt í liggj­andi mann. Íran yrði hins vegar alvöru stríð. Nú má heyra trumbu­slag fyrir næsta stríð, við Íran, óma. Alþjóða­pressan, við­búin að taka þátt og slá takt­inn, enda virð­ist sem nafla­strengur hennar sé sam­fastur valda­el­ítu heims­ins, svo sem her­gagna- og stríðs­iðn­að­inn og auð­linda­sam­steypur. Tromm, tromm, tromm ...

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár