Brak var „á ferð og flugi“ um Siglufjörð í dag í fárviðri, þar sem vindhviður mældust upp í 55 metra á sekúndu, samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra. Á meðfylgjandi myndum má sjá viðbragðsaðila í bænum reyna að fyrirbyggja frekara tjón.
Ofan á tjón vegna vinds var byrjaður að koma fram skaði af völdum yfirborðsvatns.
Í dag var einnig varað við hættu á sjávarflóðum hinum megin á landinu, í Vík í Mýrdal. Björgunarsveitin á Húsavík var sömuleiðis ræst út vegna versnandi veðurs og rigningar.
Appelsínugul viðvörun er á Norðvesturlandi og á Vestfjörðum fram á nótt. „Lausamunir geta fokið,“ segir Veðurstofan. Á höfuðborgarsvæðinu er gul viðvörun, eins og annars staðar á landinu, fyrir utan Suðurlandsundirlendið, þar sem ekki er viðvörun.
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur, sem varaði fyrstur við komu lægðarinnar í fyrradag segir á Facebook-síðu sinni í dag að met fyrir lágan loftþrýsting í októbermánuði, sem staðið hefur frá árinu 1963, …


















































Athugasemdir