Donald Trump Bandaríkjaforseti vill að hugtakið „ofurgreind“ leysi „gervigreind“ af hólmi og segir þá sem ekki fara að vilja hans teljast óvini. Þeir sem virðu ekki vilja hans verði álitnir óvinir. Hann tilgreindi þó ekki hvaða afleiðingar það kynni að hafa.
„Hvíta húsið lítur á alla sem nota hugtakið ‚gervigreind‘ í stað hins nýja, mun viðurkenndara og nákvæmara hugtaks ‚ofurgreind‘ sem ÓVINI!“ skrifaði Trump á samfélagsmiðli sínum, Truth Social.
Trump nefndi fyrirhugaða nafnbreytingu í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í síðasta mánuði og sagði nýja hugtakið „hljóma miklu betur“.
Í lok september undirritaði Trump síðan forsetatilskipun um að hugtakið „ofurgreind“ skyldi notað í allri starfsemi bandarískra alríkisstofnana. Sama skylda nær ekki til einkafyrirtækja, en sum þeirra hafa þegar tekið hugtakið upp, þar á meðal Meta, fyrirtæki Marks Zuckerbergs. Elon Musk, bandamaður Trumps, notar einnig hugtakið „ofurgreind“ í færslum sínum á samfélagsmiðlinum X.
„Hvíta húsið lítur á alla sem nota …




















































Athugasemdir