Á tímum heimsfaraldurs var dregin upp ný tegund línurits fyrir stöðu fólks í hagkerfinu. Þar sem fyrir efri hluta hagkerfisins gengur allt að sólu. Fyrir neðri hluta hagkerfisins hægist leiðin til helvítis þar sem allt hallar undan fæti.
Stærðfræðileg staðreynd í einfaldaðri lýsingu á K-kúrfu hagkerfisins felst í því að ef helmingur er á efri legg og helmingur á neðri legg þá hækka laun að meðaltali þegar efri leggurinn fær launahækkanir umfram kjarasamninga og verðbólgu. Jafnvel þó að neðri leggurinn rýrni einvörðungu með kjarasamningsbundnum hækkunum. Þar sem þær samningsbundnu tölur hafa ekki haldið í við verðlag þá lækkuðu kannski launin um hálft prósent í fyrra og eitt prósent í ár að raunvirði. En meðaltal launa hækkaði því efri helmingurinn hækkaði um meira en þetta eina og hálfa prósent. Um næstu áramót eiga svo samningsbundnu launin að hækka um 3,5% en verðbólga er nú nánast 6%. Jafnvel þó að samið hafi verið með sérákvæðum um að lægstu taxtar hækki um 4,9% um áramótin fyrir neðri hlutann á neðri legg K-sins þá er það í raun kjararýrnun um aðra prósentu.
Mörgum finnst, sérlega hagfræðingum, að þetta ástand sé bara sama gamla sagan um verðbólgu sem hafi alltaf verið svona og muni því alltaf vera þannig áfram. En það er bæði ábyrgðarlaus klisja og andstætt staðreyndunum að japla á þeirri möntru. Því hérlendis hafa samningar verið gildandi í yfir tvö ár, þar sem samið var um minni kjarabætur en þáverandi verðbólga var – einmitt til þess að ná henni niður. En það tókst ekki. Sú verðbólga, umfram viðmiðin, var alls ekki tilkomin vegna verkalýðshreyfingarinnar eða launa og eyðslu neðri hluta K-leggsins í hagkerfinu, heldur vegna aðgerða atvinnulífsins annars vegar, sem hækkaði laun annarra meira og vörur enn meira, og hins opinbera hins vegar, sem hækkaði alls konar þjónustugjöld, sem bitnað hafa mun meira á neðri helmingi K-sins heldur en þeim efri. Merkilegt er að sami maður sat, á ólíkum tímum, bæði í stóli fjármálaráðherra og í forsvari atvinnulífs samtakanna. Sumum gæti því þótt skiljanlegt að hann væri flúinn úr verðbólgulandinu – jafnvel bara til að spila golf í betra veðri en hér í hausthretinu.
Sögulegt samhengi
Fyrir hundrað árum var gerð merkileg félagsfræðileg stúdía í Bandaríkjunum þar sem hugtakið um miðlungsbæinn var búið til (Middletown – A Study in Modern American Culture) en í borginni (sem raunverulega var Muncie í Indiana-ríki) bjó hæfileg blanda verkalýðs og viðskiptalýðs (working class & business class). Svefnvenjur þar voru meðal annars rannsakaðar því verksmiðjurnar opnuðu fyrr heldur en skrifstofurnar. Deilur sköpuðust síðan um sumartíma, þar sem viðskiptalýðurinn vildi gjarnan fá klukkutíma lengur bjart á golfvellinum eftir vinnu á meðan verkalýðurinn taldi sig tapa mikilvægum svefni við að bjart væri lengur væri klukkunni breytt. Stuttu síðar kom kreppan mikla, þó að ekkert orsakasamhengi sé þar á milli.
Einhverjum áratugum seinna var búið til hugtakið um vísitölufjölskylduna hérlendis, sem kannski var forsenda þeirrar miklu útbreiddu verðtryggingar sem hér á landi virðist arfbundin og óbreytanleg. Hins vegar virðist tegund þessarar fjölskyldu vera að deyja út, þar sem einvörðungu efri hlutinn í K-kúrfunni, sem kalla mætti viðskiptalýðinn, hefur efni á því að eignast börn. Neðri leggurinn, sem til einföldunar mætti kalla verkalýðinn, hefur hvorki tíma til né efni á því að eignast börn í núverandi efnahagsástandi. Öldrun þjóðarinnar var þó hafin löngu fyrr en umbreytingar barneignanna urðu.
Jafnvel þó að viðskiptalýðurinn leggi sig fram um að eignast fleiri börn en vísitölufjölskyldan gerði, þá dugar það ekki til og Ísland hrapar nú á síðastliðnum áratug niður í evrópskt meðaltal frjósemi. Samhliða nær atvinnuleysi hérlendis nú evrópsku meðaltali á ógnarhraða, þótt orsakasamhengi þar á milli sé heldur ekkert.
Tilgangur opinberra fjármála
Fyrir tíu árum tóku gildi ný lög um opinber fjármál þar sem sérstök áhersla var lögð á langtímahugsun, stöðugleika, aga við framkvæmd fjárlaga og bætt reikningsskil. Lögin áttu að fela í sér verulegar breytingar á viðteknum verkferlum og verkaskiptingu, umgjörðinni skyldi treyst og skilyrði skyldi skapa fyrir samþættingu markmiða í efnahagsmálum og fjármálum opinberra aðila.
„Fá af þessum fyrirheitum virðast hafa náðst“
Fá af þessum fyrirheitum virðast hafa náðst. Nú á hins vegar að ná verðbólgumarkmiði annarra laga, sem fjalla um Seðlabanka Íslands, með því að leggja áherslu á að eyða fjárlagahallanum sem verið hefur viðvarandi frá því lögin um opinber fjármál voru sett.
Það að ætla síðan líka að ná niður verðbólgunni með því að þrengja vel að neðri leggnum á K-inu til þess að styggja alls ekki þá sem eru betur settir á efri leggnum, því þar megi alls ekki hækka skattana sem þar lenda, er einstaklega þverstæð rökvísi lagasetningar og efnahagsstjórnar.
Að launalækkun, í raun, á neðri leggnum geti einhvern veginn lækkað viðvarandi verðbólgu með því að vinna svo harkalega gegn því að þau lægri laun haldi í við verðhækkanir, er sérlega stór misskilningur á hugmyndinni um hugtakið núll í raun.
Menning og valdmörk
Hin peningalega viðskiptamenning sem ræður ríkjum í íslensku viðskiptalífi og efnahagsstjórn virðist helst eiga sér vissa samlíkingu að finna í stjórnarháttum fasteignarekstrar sem frægur er orðinn af endemum frá Madríd, höfuðborg Spánar. Hömlur sem settar voru á margfalda hækkun húsnæðiskostnaðar og leiddu til þess að þak var sett á leiguna þar hjá gömlu konunni sem borin var út hafði samt þá niðurstöðu að leigan varð fjórðungi hærri en tekjurnar hennar. Svo dó hún.
Fjárlög, sem óumdeilanlega eru mikilvægasta lagasetning hvers þings, skila nú orðið ekki þeim árangri sem til er ætlast. Fjárlagagerð byggir á rótgrónum kerfum sem miða að því að útdeila takmörkuðum gæðum og dreifa þeim byrðum. Það er nauðsynlegt að auka skilning á pólitískri hagfræði fjárlagagerðar og þar með list hins mögulega. Hlutverk kjörinna fulltrúa er að fara með það vald og kljást við úrlausnarefnið.
Því er ískyggilegt þegar ráðherra fjármálaráðuneytis sem ekki er kosinn til þings sendir minnisblað til fjárlaganefndar þess um fylgni við breyttar fjármálareglur sem fengu litla þinglega meðferð og enn minni umfjöllun á sviði stjórnmálanna. Eins er enn ískyggilegra þegar embættismaður í stóli seðlabankastjóra segir það heimskulega hugmynd ríkisstjórnar að reyna að hemja sjálfvirka vísitölubundna hækkun á leigu með frumvarpi sem hann ku ekki hafa lesið, jafnvel þó að það lagafrumvarp sé lagt fram af fyrrum verkalýðsleiðtoga sem kosinn var lýðræðislega til þings.






















































Athugasemdir