Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, kallar eftir varanlegu vopnahléi á Gaza í aðdraganda þess að þrjú ár eru liðin frá árás Hamas á Ísrael 7. október 2023.
„Nú er kominn tími til að vopnahléið verði varanlegt. Nú er kominn tími til að hleypa mannúðaraðstoð inn í stórum stíl. Og nú er kominn tími til að virða alþjóðalög,“ sagði Guterres í yfirlýsingu og kallaði eftir „pólitískri leið að varanlegum friði um allt svæðið“.
„Látum þetta afmæli ekki aðeins marka enn eitt sorgarárið, heldur einnig endurnýjaðan ásetning um að byggja upp aðra framtíð: framtíð þar sem Ísraelar og Palestínumenn geta búið hlið við hlið í friði og öryggi og réttindi þeirra, reisn og vonir verða að veruleika,“ sagði Guterres.
Guterres minntist einnig á mannfall Ísraela í yfirlýsingunni. Hann kallaði árás Hamas „andstyggilega“ fyrir að hafa „drepið rúmlega 1.200 Ísraela og erlenda ríkisborgara“ og tekið 251 mann til viðbótar í gíslingu.
Guterres …
























































Athugasemdir