Fulltrúi Íslands sat áfram meðan tugir gengu úr salnum undir ræðu Netanyahu

Tugir full­trúa gengu úr salnum þegar Benjamín Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, hóf ræðu sína á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Fulltrúi Íslands sat áfram í sæti lands­ins. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra var á sama tíma á fundi til stuðn­ings Palest­ínu­flótta­manna­hjálp SÞ.

Fulltrúi Íslands sat áfram meðan tugir gengu úr salnum undir ræðu Netanyahu
Net­anyahu brást við útgöng­unni úr pontu og kall­aði full­trú­ana sem yfir­gáfu sal­inn „moral cowards“, eða sið­ferði­lega hug­leys­ingja. Mynd: ANGELA WEISS / AFP

Ísland tók ekki þátt í fjölda­út­göngu full­trúa á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna þegar Benjamín Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, steig í pontu í New York í dag. Fulltrúi Íslands sat áfram í sæti lands­ins á meðan tugir ann­arra full­trúa yfir­gáfu sal­inn.

Þetta stað­festir aðstoð­ar­maður utan­rík­is­ráð­herra við Heim­ild­ina.

Erlendir fjöl­miðlar greina frá því að tugir full­trúa hafi gengið úr salnum þegar Net­anyahu hóf ræðu sína. Myndir frá þing­inu sýna fjölda auðra sæta eftir útgöng­una.

Palest­ínska sendi­nefndin hafði fyrir ræð­una hvatt önnur ríki til að fjöl­menna í sal­inn og ganga síðan sam­eig­in­lega út þegar Net­anyahu yrði kynntur til leiks.

Net­anyahu brást við útgöng­unni úr pontu og sagði þá sem enn kynnu að vilja yfir­gefa sal­inn vera „moral cowards“, eða sið­ferði­lega hug­leys­ingja. Fund­ar­stjóri þurfti ítrekað að kalla eftir ró þegar hróp, baul og lófatak heyrð­ust í salnum.

Þorgerður á UNRWA-fundi á sama tíma

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra var ekki í salnum þegar Net­anyahu flutti ræðu …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Allt er þetta nú í krafti $ dollara, morðingjar og yfirlýstir glæpamenn fá leyfi til að bulla á þessum sameginlega stað okkar allra Sameinuðu þjóðunum. Nokkrir vinir hafa tekið höndum saman um að ræna þjóðhöfðingum, stela auðlindum og myrða heilu þjóðirnar, há stríð vegna græðgi og gamalla ritninga, eiðileggja verðmæti og eyða landbúnaði svo eitthvað sé nefnt. Og við fáum ekki rönd við reist.
    3
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Did the other Nordics keep their seat or leave the chamber?
    0
  • ÁGS
    Ásgeir Grétar Sigurðsson skrifaði
    Af hverju var þjóðarmorðinginn ekki handtekinn á þessum fundi? Hvers virði eru handtökuskipanir sameinuðu þjóðanna gegn glæpamönnum? Alþjóðalög eru gjörsamlega ónýt.
    Mikil er skömm okkar íslendinga þarna, eina ferðina enn að sitja og hlusta á helvítið - Eru morðin orðin 90.000 fyrir utan særða og veraldlegt tjón? - og engar afleiðingar?? 😪
    4
  • Kristján Þór Sigurðsson skrifaði
    Hvaða vopnahlé?????
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár