Tækniskólamálið: Segir vanhæfi stjórnenda blasa við

Guð­mundur Árni Stef­áns­son, fyrr­ver­andi odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Hafn­ar­firði, segir van­hæfi bæj­ar­stjóra og stjórn­enda aug­ljóst í tengslum við Tækni­skóla­málið. „Það vissu allir hvað þurfti að gera,“ segir hann.

Tækniskólamálið: Segir vanhæfi stjórnenda blasa við
Guð­mundur Árni Stef­áns­son Fyrr­ver­andi odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Hafn­ar­firði gagn­rýndi marg­sinnis hæga­gang vegna lóða­kaupa í kringum Tækni­skól­ann. Mynd: Golli

„Það liggur ljóst fyrir og blasir við að þetta gerð­ist út af van­hæfi stjórn­enda bæj­ar­ins, og bæj­ar­stjór­arnir tveir, bera höf­uð­á­byrgð­ina á þessu,“ segir Guð­mundur Árni Stef­áns­son, fyrr­ver­andi odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Hafn­ar­firði og frá­far­andi vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Sam­fylk­ingin undir for­ystu Guð­mundar Árna var­aði ítrekað við seina­gangi vegna lóða­kaupa í tengslum við Tækni­skól­ann.

Meiri­hluta Sjálf­stæðis- og Fram­sókn­ar­flokks mistókst að semja um upp­kaup á lóðum á suð­ur­höfn Hafn­ar­fjarðar til þess að reisa Tækni­skól­ann eins og stefnt var að. Að end­ingu riftu bæj­ar­yf­ir­völd og Tækni­skól­inn samn­ingum sín á milli um upp­bygg­ingu skól­ans í sveit­ar­fé­lag­inu og ákvað rektor Tækni­skól­ans að leita á önnur mið og úti­lok­aði ekki fjár­kröfu vegna taf­anna.

Vitað hvað þurfti að gera

Heim­ildin greindi frá því að fund­ar­gerðir síð­ustu fimm ára sýndu and­vara­leysi meiri­hlut­ans sem tók sig ekki taki þrátt fyrir þrá­látar við­var­anir um að sveit­ar­fé­lagið væri að renna út á tíma varð­andi lóð­ar­kaupin. Málið var langt komið í stjórn­sýslu bæj­ar­ins og var …

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Oft hefur Sjálfstæðisflokkurinn verið staðinn að afdrifaríkum mistökum. Stærsta málið var auðvitað einkavæðing bankanna á sínum tíma án þess að gera neinar ráðstafanir til að forða þjóðinni frá þeirri gríðarlegu sóun sem varð á verðmætum og einkum bitnaði á þeim sem minnst máttu sín. Það hefði m.a. verið unnt með mjög einfaldri lagabreytingu á atkvæðisrétti hluta í hlutafélögum. Gera þarf þá kröfu að fyrir hluti hafi verið greidd raunveruleg verðmæti og að einungis óveðsettir hlutir bæru atkvæðisrétt. Þessu þarf að breyta því enn er töluverð hætta á að braskarar veðsetji hluti sína til að kaupa fleiri og þannig koll af kolli. Þá þarf að koma í veg fyrir að unnt sé að búa til gríðarleg verðmæti með einhverjum bókhaldsbrellum eins og tíðkast hefur.
    Önnur grafalavarleg afglöp Sjálfstæðisflokksins var að láta ekki skattleysismörk fylgja neinum vísitölum. Skattbyrðinni hefur verið undanfarin 35 ár velt yfir á láglaunafólk og þá sem minnst hafa úr að moða.
    Enn annað mjög ámælisvert er þegar Sjálfstæðisflokkurinn tók þá afdrifaríku ákvörðun að leggja niður í sparnaðarskyni Rannsóknarstofnun byggingaiðnaðarins. Fyrir vikið hafa verið flutt hingað til lands ódýr og ekki hentug byggingaefni sem standast engan veginn íslenskt veðurfar né aðstæður eins og þær eru hér. Fyrir vikið hefur t.d. mygla og ýmsir annmarkar í húsum farið vaxandi sökum einhverrar þröngsýni sem ríkir innan íhaldsmanna.
    Þá hefði mátt koma í veg fyrir rányrkju m.a. með takmörkun og jafnvel banni við botnvörpuveiðum sem hafa haft þær afleiðingar að humarmið fyrir Suðurströnd landsins voru gjörsamlega eyðilögð en þau voru áður talin vera ein göfugustu humarmið veraldar. Allt vegna skammtíma sjónarmiða!
    Sjálfstæðisflokkurinn er sá flokkur þar sem einkum þröngsýnin ræður ríkjum. Þar hefur verið einbeittur vilji að koma í veg fyrir áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið. Við eigum margfalt meira sameiginlegt með Evrópusambandinu en flesta grunar. Lagaumhverfið innan þess er á ótalmörgum sviðum komið lengra en okkar sem er á allt of mörgum sviðum fornfálegt. Hvar meðal siðaðra þjóða er dýraníð á borð við blóðmerahald og hvalveiðar látið viðgangast? Erum við kannski í höndunum á skammtímagróðamönnum sem byggja sína afkomu á rányrkju, hroka og heimsku?
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár