Trump fordæmir „sjúkt samsæri“ gegn gervigreind

Forseti Banda­ríkj­anna neitar að auka reglu­verk um gervi­greind því það myndi veita Kín­verjum for­skot. Hann ræðst að for­stjórum tækni­fyr­ir­tækja sem hafa við­haft varn­að­ar­orð og beðið um að hægt verði á þró­un­inni og sakar þá um land­ráð og svik.

Trump fordæmir „sjúkt samsæri“ gegn gervigreind

DDonald Trump Banda­ríkja­for­seti réðst í dag gegn því sem hann kall­aði „sjúkt sam­særi“ gegn gervi­greind og hafn­aði kröfum um aukið reglu­verk þrátt fyrir vax­andi áhyggjur af því að tæknin geti ógnað mann­kyn­inu.

Trump sagði Banda­ríkin þurfa að halda for­ystu á sviði gervi­greindar til að hafa betur gegn stór­veld­inu Kína og gagn­rýndi harð­lega for­stjóra Anthropic, fyr­ir­tæk­is­ins á bak við Claude, sem hefur kallað eftir því að hægt verði á þró­un­inni.

„Eina eft­ir­litið eða þær „var­úð­ar­ráð­staf­anir“ sem gervi­greind þarfn­ast er STERKUR OG KLÁR (með háa greind­ar­vísi­tölu!) FORSETI, og Banda­ríkin hafa slíkan for­seta svo um munar!“ sagði Trump í færslu á sam­fé­lags­miðli sínum Truth Social.

Vísar varnarorðum á bug 

Trump hefur á síð­ast­lið­inni viku ítrekað vísað á bug fjölda við­var­ana frá stjórn­endum tækni­fyr­ir­tækja um hættur gervi­greindar, með þeim rökum að með banda­rísku reglu­verki yrði keppi­nautnum í Peking gefið for­skot.

„Það er SJÚKT sam­særi í gangi gegn gervi­greind og gagna­verum og sá eini …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár