Auglýsing sem merkt var hlaðvarpsmiðlinum Þjóðmálum dagana fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið var pöntuð fyrir samtökin Áfram Ísland. Þetta kemur fram í svörum Ríkisútvarpsins.
„Segjum nei við framsali íslenskra orkuauðlinda. Segjum nei við ESB,“ sagði í auglýsingunni, áður en hún var merkt: „Þjóðmál.“ Þar er um að ræða hægri sinnaðan Hlaðvarpsþátt í eigu Gísla Freys Valdórssonar.
„Áfram Ísland stóð að viðkomandi auglýsingu,“ segir Einar Logi Vignisson, auglýsingastjóri RÚV.
Samkvæmt svörum samtakanna Áfram Ísland neita þau að hafa keypt auglýsinguna.
Vara við sæstreng sem Kýpur vill fá
Í auglýsingunni var varað við „raunverulegri hættu“ á því að Evrópusambandið stæði að lagningu sæstrengs fyrir raforku til Íslands. „Íslensk orka myndi streyma úr landi, raforkuverð hækka og þrýstingur myndi aukast á að virkja íslenska náttúru til að mæta orkuþörf Evrópu,“ sagði í leiklesinni auglýsingu. Vísað var til þess að ESB hefði unnið að samtengingu raforkukerfis aðildarríkjanna. „Þetta er raunveruleg …
























































https://www.visir.is/g/20262933347d/segir-afram-island-ekki-hafa-borgad-fyrir-auglysingu-thjodmala
Eigandi birtingarhúss sem bókaði auglýsingar fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna í síðasta mánuði segir að Áfram Ísland hafi ekki greitt fyrir auglýsingu í nafni hlaðvarpsins Þjóðmála. Auglýsing á RÚV hafi verið misskráð á kennitölu Áfram Íslands.
Diðrik Örn Gunnarsson, eigandi Ratsjá Media, staðfestir í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis að Þjóðmál hafi borið kostnað af auglýsingum sem voru birtar í nafni hlaðvarpsins.
„Áfram Ísland greiddi ekki fyrir þær auglýsingar,“ segir í svari hans.
- Nú verður fróðlegt að sjá hvort Heimildin birtir aðra frétt með réttum staðreyndum.
Hvað með lygarnar og ómerkilegheitin sem félög lesblindra og hveilaþveginna kostuðu til útbreiðslu á? Ekki ámælisvert ef það var gert fyrir þá skoðun sem þú telur "rétta"?
Hefði þá ekki allt eins mátt panta auglýsingu á kennitölu Evrópuhreyfingarinnar þess efnis að í Evrópusambandinu hafi allar lífins gátur verið leystar og allir prumpi glimmeri?