Sýn tilkynnti Fjármálaeftirlitinu fyrr á þessu ári um það hvernig farið var með innri upplýsingar hjá félaginu árið 2022, þegar Heiðar Guðjónsson var stærsti eigandi og forstjóri fyrirtækisins.
Málið tengist meðal annars rekstrarspá sem virðist ekki hafa farið rétta boðleið innan félagsins um svipað leyti og Heiðar seldi fjárfestum stóran hlut í fyrirtækinu. Þessir sömu fjárfestar hafa stefnt Heiðari fyrir dóm og krefjast skaðabóta, að því er Morgunblaðið greinir frá.
Málið snýr meðal annars að uppfærðri rekstrarspá Sýnar vegna tekna af svokallaðri IoT-starfsemi, eða þjónustu sem tengir tæki og búnað við fjarskiptanet. Samkvæmt Sýn virðist þeirri spá ekki hafa verið miðlað innan félagsins eins og verklagsreglur gerðu ráð fyrir.
Félagið greinir frá þessu í tilkynningu til Kauphallarinnar og segir tilefnið vera umfjöllun um málshöfðun Gavia Invest á hendur Heiðari og félagi hans Úrsus.
Málið kom upp þegar núverandi stjórn og stjórnendur Sýnar fóru yfir eldri rekstrargögn vegna áætlanagerðar fyrir árið 2026. Þá komu fram upplýsingar sem urðu til þess að farið var að skoða nánar hvernig farið hefði verið með upplýsingar um rekstrarspá félagsins árið 2022.
Stjórn Sýnar fékk í kjölfarið óháð lögfræðiálit og ákvað eftir þá yfirferð að upplýsa Fjármálaeftirlitið um málið og afhenda því gögn.
Atvikin sem núverandi stjórn taldi ástæðu til að vekja athygli Fjármálaeftirlitsins á áttu sér stað um svipað leyti og Heiðar átti í milljarðaviðskiptum með hlutabréf í Sýn.
Eignarhaldsfélag Heiðars seldi í júlí 2022 nýstofnuðu félagi undir forystu Reynis Grétarssonar 12,72 prósenta hlut sinn í Sýn. Með viðskiptunum seldi Heiðar allan hlut sinn í félaginu og lét jafnframt af störfum sem forstjóri.
Sýn tekur fram í tilkynningu sinni að félagið taki ekki afstöðu til þess hvort lög eða reglur hafi verið brotin. Fjármálaeftirlitið hafi heldur ekki komið neinni niðurstöðu eða afstöðu á framfæri við félagið vegna málsins.
Í yfirlýsingu stjórnar Sýnar segir jafnframt að þessi atvik frá árinu 2022 hafi engin áhrif á daglegan rekstur félagsins í dag og að rekstur og afkoma séu í samræmi við birtar áætlanir.















































Athugasemdir