„Það er ekki hægt að selja umbúðirnar endalaust“

Pró­fess­or emer­it­us í fjöl­miðla­fræði seg­ir vanta meiri ábyrgð hjá eig­end­um fjöl­miðla líkt og þekkt­ist áð­ur. Ráð­herra seg­ir það flók­ið mál að skatt­leggja aug­lýs­inga­tekj­ur til er­lendra sam­fé­lags­miðla.

„Það er ekki hægt að selja umbúðirnar endalaust“
Sýn Sjónvarpshluti Sýnar var lagður niður í gær. Uppsagnir voru einnig hjá fyrirtækinu því tengdu.

„Meðal þess sem vantar er ábyrgari eigendamenning fyrir fjölmiðla,“ segir Birgir Guðmundsson, prófessor emerítus í fjölmiðlafræði við Háskóla Akureyrar, þegar staða fjölmiðla er skoðuð í ljósi fregna af því að framleiðslu sjónvarpsfrétta á Sýn hefur verið hætt.

Fram kemur í greiningu Hagstofunnar sem birtist í apríl – og nær til árabilsins 2010 til 2024 – að  tekjur fjölmiðla af auglýsingatekjum voru 36 prósentum lægri árið 2024 en árið 2016, sem má rekja til útstreymis auglýsingafjár til erlendra aðila. 

Árið 2024 höfðu tekjur fjölmiðla fallið um milljarð á milli ára, sem mátti rekja til uppsagna áskrifta og lækkunar auglýsingatekna. Hlutdeild Ríkisútvarpsins í tekjum fjölmiðla hafði hins vegar aukist á milli ára og var 29 prósent. „Lætur því nærri að þrjár krónur af hverjum tíu renni til Ríkisútvarpsins,“ segir á vef Hagstofunnar. 

Af 30,3 milljarða króna tekjum fjölmiðla 2024 féllu tæpir 8,7 milljarður króna …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár