Sár vonbrigði á tímum mikilla breytinga

Formaður Blaða­manna­fé­lags Íslands segir það von­brigði að sjón­varps­fréttir Sýnar hafi verið lagðar niður. Hún segir mik­il­vægt að almenn­ingur ger­ist áskrif­endur að íslenskum fréttum.

Sár vonbrigði á tímum mikilla breytinga
Formaður blaðmanna­fé­lags Íslands Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir segir það von­brigði að fram­leiðslu á sjón­varps­fréttum sé hætt hjá Sýn. Mynd: Press.is

„Þetta eru sár von­brigði, þótt þetta komi ekki endi­lega á óvart,“ segir Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands, um ákvörðun stjórn­enda Sýnar að leggja niður fram­leiðslu á sjón­varps­frétta­hluta Sýnar. Þetta eru umfangs­miklar breyt­ingar í íslensku fjöl­miðla­lands­lagi sem hefur verið að drag­ast saman und­an­far­inn ára­tug og er svo komið að það er aðeins ein sjón­varps­frétta­stofa eftir, sem er hjá Rík­is­út­varp­inu. Blaða­manna­fé­lagið hefur fengið til­kynn­ingu um ákvörð­un­ina en ekki liggur fyrir hversu mörgum hefur verið sagt upp á frétta­stof­unni.

„Þetta er ferða­lag sem Sýn var þegar lagt af stað með,“ segir Sigríður Dögg en það slitn­aði upp úr samn­inga­við­ræðum Sýnar við Símann fyrir skömmu þar sem allir frétta­miðl­arnir voru boðnir til sölu nema sjón­varps­frétta­hlut­inn.

Sjónvarpsfréttir með meira traust

„Við vorum von­góð um að þau sæju tæki­færið í að halda áfram, en að sjá félags­menn okkar missa vinn­una er ömur­legt,“ segir Sigríður.

Hún segir þetta þróun sem sé að …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár