Spurningin sem skekur bandarískt stjórnkerfi

Einföld spurn­ing afhjúpar veik­leika á meðal emb­ætt­is­manna og dóm­ara sem skip­aðir eru af for­set­anum, á for­dæma­lausum tímum þar sem verið er að und­ir­búa við­brögðin ef úrslit þing­kosn­inga í nóv­em­ber verða honum óhag­stæð.

Spurningin sem skekur bandarískt stjórnkerfi

Spenna eykst í aðdrag­anda þing­kosn­ing­anna í Banda­ríkj­unum í nóv­em­ber. Vaxandi óánægja með efna­hags­á­standið og lækk­andi fylgi Donalds Trump for­seta hefur vakið vonir demókrata um að þeir geti end­ur­heimt völd á þing­inu.

Á sama tíma á sér hins vegar stað óvenju­legur und­ir­bún­ingur víða um landið. Kosn­inga­yf­ir­völd, leið­togar Demókra­ta­flokks­ins og borg­ara­sam­tök búa sig undir mögu­legar til­raunir rík­is­stjórn­ar­innar til að hafa afskipti af kosn­ing­unum, leggja hald á kjör­seðla eða draga nið­ur­stöð­urnar í efa.

Los Angeles Times greindi frá því um helg­ina að stór hluti und­ir­bún­ings­ins væri leyni­legur, bæði til þess að rík­is­stjórnin sé ekki upp­lýst um við­bragðs­á­ætl­anir og eins til að valda ekki óþarfa ótta á meðal kjós­enda. Í stór­borgum verður starfs­fólki kjör­staða útveg­aðir neyð­ar­hnappar, emb­ætt­is­menn æfa við­brögð við mögu­legum aðgerðum inn­flytj­enda­yf­ir­valda við kjör­staði og lög­menn und­ir­búa mál­sóknir ef reynt verður að leggja hald á kjör­seðla. Samhliða þessu er verið að und­ir­búa þing­menn demókrata til þess að svara hratt ef órök­studdar …

Kjósa
61
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JG
    Jón Gíslason skrifaði
    Þetta er staðan hjá kyndilbera frelsis, sannleiks og lýðræðis sem Bandaríkin áttu að vera. Fyrirmynd smærri ríkja sem var eftirsóknarvert að halla sér upp að og vinna með.
    Hugsunarháttur þeirra sem eru hliðhollir Prump sýnir litla sem enga siðferðislega kennd gagnvart lýðræði, sannleik og almannahag. Þá er ekki úr vegi að spyrja hvernig Íslendinga sem líta upp til hans sjá fyrir sér að okkur vegnaði undir stjórn þess fólks sem svífst einskis til þess að falla í kramið hjá vitfirrtum forsetanum? Er virkilega allt í gúddí að treysta þessu fólki fyrir því að standa vörð um okkar grunngildi þegar þau snúast gegn sinni eigin þjóð til þess að falla í kramið hjá Prump? Hann væri ekki ólíkegur til að fara öfugt fram úr rúminu einn daginn og ákveða að Ísland ætti barasta líka að heyra undir stjórn hans. Hugsum lengra inn í framtíðina og þjöppum okkur saman með líkt þenkjandi þjóðum sem hafa lýðræði, frelsi, sannleik, fjölmiðlafrelsi og mannréttindi í hávegum.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár