„Þetta kemur mér verulega á óvart. Það eru margir stórlaxar á svæðinu,“ segir Jóhanna Halldóra Sigurðardóttir, skógræktar- og ferðaþjónustubóndi á Dröngum og fyrrum kennari og skólastjóri, þegar blaðamaður færir henni þær fregnir að hún sé þriðji tekjuhæsti einstaklingur á Vesturlandi.
Jóhanna er með heildarárstekjur upp á 329.777.958 krónur og er í 95. sæti á landsvísu. Tekjurnar eru mestmegnis tilkomnar vegna fjármagnstekna. Í fyrra var Jóhanna einnig á listanum en þá í 367. sæti með heildarárstekjur upp á 121.586.076 krónur. „Bókarinn okkar var ekkert búinn að tala neitt um þetta,“ segir hún um nýjustu tölurnar. Jóhanna trónir á toppi listans í Dalabyggð sem kemur henni töluvert minna á óvart þar sem hún segir að um bændasamfélag sé að ræða.
Spurð út í ástæður þessara háu tekna segir Jóhanna að þau hjónin hafi selt hlut í fyrirtæki á árum áður en vildi ekki ræða málið nánar. „Ég er nú bara uppgefinn kennari …






















































Athugasemdir