Ísland hluti af áætlun bandarískra olíumanna á Grænlandi

Banda­rískt fyr­ir­tæki með teng­ing­ar við Don­ald Trump hyggst bora eft­ir olíu á Græn­landi þrátt fyr­ir skort á leyfi. Sjón­varps­mað­ur­inn Dr. Phil verð­ur með í för og tæki verða flutt í gegn­um Ís­land af um­deilda stór­fyr­ir­tæk­inu Halli­burt­on.

Ísland hluti af áætlun bandarískra olíumanna á Grænlandi
Úr hlaðvarpi Dr. Phil Forstjóri Greenland Energy sýndi Phil McGraw siglingaleiðina sem fyrirtækið hyggst fara á leið til olíuborunar í haust.

Ísland verður viðkomustaður bandarískra olíumanna í leiðangri þeirra til að bora eftir olíu á Grænlandi í haust. Alræmda verktakafyritækið Halliburton sér um að útvega búnað frá Danmörku og Þýskalandi og flytja hann í gegnum Ísland að sögn forstjóra.

The Guardian og Aftonbladet fjölluðu um helgina um áætlanir Greenland Energy en fyrirtækið hyggst senda skip með búnaði til olíuborunar frá Kanada 12. september með það fyrir augum að byrja að bora í október.

Stjórnvöld á Grænlandi hafa hins vegar varað fyrirtækið við að láta verða af verkefninu þar sem tilskilin leyfi liggja ekki fyrir. Engin olíuleitarleyfi hafa verið veitt á Grænlandi undanfarin fimm ár vegna umhverfissjónarmiða. Greenland Energy hyggst starfa á grunni gamals leyfis sem fyrirtækið keypti en samþykki stjórnvalda vantar þó enn fyrir breytingunni.

Færsla á Truth SocialBandaríkjaforseti hefur lengi talað fyrir innlimun Grænlands.

Aðstandendur fyrirtækisins sverja fyrir það að verkefnið hafi nokkuð með löngun Donald Trump Bandaríkjaforseta til …

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PH
    Pétur Hilmarsson skrifaði
    Ísland er augljós þjónustu "hub" fyrir verkefni á Grænlandi, sérstaklega austurhlutanum svo það er ekki undarlegt að landið komi fram í þessu.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár