Erlendum ríkisborgurum fjölgar áfram á Íslandi

Þrátt fyrir vax­andi atvinnu­leysi fjölgar erlendum rík­is­borg­urum áfram á Íslandi, en hægt hefur á.

Erlendum ríkisborgurum fjölgar áfram á Íslandi
Frá menn­ing­arnótt Íslend­ingum hefur fjölgað mikið á síð­ustu árum. Mynd: Hörður

Íbúum á Íslandi fjölg­aði um 1.450  Frá apríl til júní fluttu 930 ein­stak­lingar til Íslands umfram brott­flutta. Þar af voru 700 erlendir rík­is­borg­arar, en 230 íslenskir.

Það jafn­gildir um það bil íbúa­fjölda Blöndu­óss í aðflutn­ingi fólks á einum árs­fjórð­ungi.

Erlendir rík­is­borg­arar eru núna 17,9% af mann­fjöld­anum, eða lið­lega 71 þús­und manns. Fyrir tíu árum voru erlendir rík­is­borg­arar aðeins 26 þús­und. 

Atvinnu­leysi hefur farið vax­andi síð­ustu ár og er nú 5% eftir að hafa verið 2,9% árið áður, árs­tíð­ar­leið­rétt. Hægt hefur á aðflutn­ingi fólks síð­ustu ár. Á sama árs­fjórð­ungi í fyrra voru 1.340 aðfluttir umfram brott­flutta, 1.780 árið áður, og 2.210 þar áður og 3.310 árið 2022.

Íslend­ingar stefna hrað­byri í að ná 400 þús­und, en eru núna 396.500 tals­ins. Eins og síð­ustu ár er meiri fjölgun vegna aðflutn­ings en vegna fæð­inga. Á árs­fjórð­ungnum fædd­ust 540 manns umfram fjölda and­láta.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár