Hitabylgjur ýta fólki í „kælifrí“

„Coolcations“ eru á dag­skránni hjá fleirum eftir svim­andi hita­bylgjur á meg­in­landi Evrópu.

Hitabylgjur ýta fólki í „kælifrí“
Afleið­ingar ofur­hita Skóg­ar­eldur á Spáni. Mynd: AFP

Evr­ópskir ferða­menn, þreyttir á end­ur­teknum hita­bylgjum, eru nú farnir að snið­ganga áfanga­staði við Mið­jarð­ar­hafið og sækja frekar í sval­ara lofts­lag norðar í álf­unni. Enn á þó eftir að koma í ljós hvort þetta sé aðeins tíma­bundin tíska eða var­an­leg breyt­ing á ferða­þjón­ustu­mark­aðnum.

Þar sem hita­stigið í Evrópu fer reglu­lega upp undir 40 gráður á Celsíus (100°F) á sumrin er svali orð­inn eft­ir­sókn­ar­verður.

Í ár hafa gestir „sagt mér að þeir hafi flúið hit­ann í suð­ur­hluta Evrópu,“ sagði Terje Viblom Pedersen, leið­sögu­maður sem býður upp á ferðir í suð­aust­ur­hluta Sví­þjóðar.

„Þeir eru gjör­sam­lega undr­andi“ á dags­hita undir 30°C og sjáv­ar­gol­unni, auk þess sem hér er ekki eins mik­ill mann­fjöldi og á vin­sælum ferða­manna­stöðum í Suður-Evrópu.

„Það er gott að hafa sloppið undan hita­bylgj­unni,“ sögðu Daniel og Florence Gastaldi, tveir franskir ferða­menn í skoð­un­ar­ferð um gamla bæinn í Stokk­hólmi.

„Við erum ánægð með að hafa …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár