Spyr hvort Evrópubúar ætli ekki að spyrna fótum eins og í Krossferðunum

Stefán Einar Stef­áns­son varði Kross­ferðir Kaþólsku kirkj­unnar og spurði hvort Evr­ópu­búar mundu hafa dug í sér til að bregð­ast við „íslam­væð­ingu“ nútím­ans.

Spyr hvort Evrópubúar ætli ekki að spyrna fótum eins og í Krossferðunum
Stefán Einar Stef­áns­son Stjórn­andi Spurs­mála þakk­aði Kross­ferð­unum hvernig Evrópa er í dag. Mynd: Árvakur

Krist­in­dómur væri ekki til og Evrópa ekki heldur í þeirri mynd sem við þekkjum hana í dag ef ekki væri fyrir Kross­ferð­irnar.

Þetta sagði Stefán Einar Stef­áns­son, blaða­maður hjá Morg­un­blað­inu og stjórn­andi Spurs­mála, sem var gestur í þætt­inum Bakslagið á Brot­kast­inu á sunnu­dag.

Í lok þátt­ar­ins ræddi Stefán Einar menn­ing­ar­mun á milli kristni og íslam. „Ég sé nú hérna í merk­inu ykkar er fal­legur bún­ingur sem vísar til ákveð­inna átaka á Miðöldum,“ sagði hann og benti á merki þátt­ar­ins þar sem karl­maður er með kross á klæðn­aði sínum sem minnir á Kross­fara.

Kross­ferð­irnar hófust að áeggjan Urbans II páfa árið 1095 þegar Kaþólska kirkjan herj­aði á veldi múslima við Mið­jarð­ar­hafið til þess meðal ann­ars að ná Jer­úsalem á sitt vald. Orðið „kross­ferð“ er nú til dags notað um ofstæk­is­fulla bar­áttu en atburð­irnir hafa ennþá ákveð­inn sess hjá ákveðnum hópum krist­inna. Þannig not­aði George W. Bush Banda­ríkja­for­seti til dæmis Kross­ferð­irnar sem …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það er ekkert hættulegra en trúarbrögð sama hvar flett er upp í sögunni, þeir sem af veikum mætti nota allskyns hugarfóstur til að gera usla eru sannanlega annað hvort með veikt taugakerfi eða lága greindarvísitölu, nem að hvoru tveggja sé.
    1
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Stefán Einar Stefánsson er ekki bara guðfræðingur og viðskipta-"siðfræðingur" heldur líka frímúrari.

    Auk þess hefur hann stundað "rannsóknir" í frímúrara"fræðum" í "rannsóknar"stúkunni Snorra :-) :-) :-) :-)

    SES: "Musteri Salomons og Frímúrarareglan".

    Niðurstöður "rannsóknanna" eru leyndó geymdar í læstum hirslum reglunnar :-) :-)

    Það er erfitt að hafa skoðun á þessum rannsóknum vegna þess að niðurstöðurnar eru leyndó.

    Leyndarhyggjan í kringum þetta er að mínu mati sprenghlægileg - mann grunar að menn skammist sín fyrir "rannsóknirnar".

    :-) :-) :-)
    4
  • Björn Grétar Sveinsson skrifaði
    hann hefur lesið söguna eitthvað vitlaust á sínum tima og ekkert lært síðan
    4
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Ætli Heritage Foundation og Atlas institution séu farin að leggja peninga í Moggann? Mogginn er altént kominn með þennan fína sjónvarps predikara alveg American style.
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár