Rússar gerðu stærstu árás á Kænugarð frá upphafi stríðsins

Að minnsta kosti 17 létu líf­ið í árás­inni auk þess sem fjöldi fólks missti heim­ili sín. „Ég veit ekki hvað ég á að gera núna,“ sagði 32 ára göm­ul móð­ir sem missti heim­il­ið sitt í árás­inni.

Rússar gerðu stærstu árás á Kænugarð frá upphafi stríðsins

Rússland gerði í nótt umfangsmestu loftárás sína á Kænugarð frá upphafi innrásarinnar í Úkraínu, að sögn borgarstjórans í höfuðborginni. Í árásinni, sem stóð yfir í nokkrar klukkustundir, voru drónar og eldflaugar notaðar gegn borgarbúum, með þeim afleiðingum að minnst 17 létust, auk þess sem fjölbýlishús skemmdust eða eyðilögðust.

Í Moskvu lýsti Kreml því yfir að Rússar hygðust auka enn frekar „þrýstinginn“ á stjórnvöld í Kænugarði. Á sama tíma leituðu björgunarsveitir í rústum bygginga að eftirlifendum.

Helsti utanríkismálafulltrúi Evrópusambandsins lagði til nýjar refsiaðgerðir gegn Rússlandi, en forseti Úkraínu, Volodymyr Zelensky, óskaði eftir því við Bandaríkin að Úkraína fengi leyfi til að framleiða Patriot-loftvarnareldflaugar innanlands til að styrkja loftvarnir landsins.

Rússland hefur reglulega beitt eldflaugum og drónum gegn úkraínskum borgum frá því innrásin hófst fyrir rúmum fjórum árum. Stríðið er orðið að mannskæðustu átökum í Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar.

Miklar sprengingar um alla borg

Blaðamenn AFP í mið- og austurhluta …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár