„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum

Nátt­úru­fræði­stofn­un tel­ur drög um­hverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­is­ins að að­gerða­áætl­un um líf­fræði­lega fjöl­breytni ganga „full skammt“. Ekki sé lík­legt að Ís­land nái mark­mið­um sín­um og al­þjóð­leg­um skuld­bind­ing­um sem stend­ur.

„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum
Árangur ólíklegur Náttúrufræðistofnun telur Ísland ekki líklegt til að ná markmiðum sínum. Mynd: Róbert A.Stefánsson

Náttúrufræðistofnun telur drög umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni 2026–2030 ganga „full skammt“ og segir þau ekki í „nægilega góðu samræmi“ við stefnu stjórnvalda um verndun um líffræðilega fjölbreytni sem kom út í byrjun árs. Telur stofnunin ekki líklegt að Ísland nái fram öllum markmiðum sínum úr stefnunni með aðgerðaáætluninni í núverandi formi. 

Drög að aðgerðaráætlun um líffræðilega fjölbreytni 2026-2030 voru birt í samráðsgátt stjórnvalda þann 3. júní en frestur til að senda inn umsagnir rann út 24. júní. Áætlunin er liður í vegferð stjórnvalda í að innleiða skuldbindingar Íslands gagnvart samningi Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni og Kunming–Montreal rammasamkomulaginu. Aðgerðaáætlunin samanstendur af nítján aðgerðum og eru fimm þeirra í forgangi. Það eru verndarsvæði í hafi, virk svæðisvernd á landi, hvatar fyrir vernd og endurheimt vistkerfa og sjálfbæra landnýtingu, átak í gerð stjórnunar- og verndaráætlana og landbúnaður og náttúruvernd.

ÓsamræmiAðgerðaáætlunin er ekki í samræmi við stefnuna …
Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Náttúruvernd

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár