„Svíþjóðardemókratar hafa í dag formlega eignast íslenskan systurflokk“

Fyrr­um leið­togi Sví­þjóð­ar­demó­krata fagn­ar inn­göngu Mið­flokks­ins í ECR-flokk­inn. Flokk­ur­inn hef­ur beðist af­sök­un­ar á tengsl­um við nýnas­isma og ver nú sænsku rík­is­stjórn­ina falli.

„Svíþjóðardemókratar hafa í dag formlega eignast íslenskan systurflokk“
Mattias Karlsson Helsti hugmyndafræðingur Svíþjóðardemókrata fagnar Miðflokknum sem systurflokki. Mynd: Esquilo

Mattias Karlsson, þingmaður Svíþjóðardemókrata og fyrrum leiðtogi flokksins, fagnar inngöngu Miðflokksins í ECR-flokkinn, Evrópuflokk íhaldsflokka.

„Svíþjóðardemókratar hafa í dag formlega eignast íslenskan systurflokk,“ skrifar Karlsson á samfélagsmiðilinn X. „Á sama tíma stíga Sannir Finnar og Danmerkurdemókratar nýtt skref til að staðfesta hollustu sína við ECR-flokkinn. Skref sem SD tók árið 2019, en var lengi vel einn á Norðurlöndunum. Góður dagur fyrir norræna íhaldsstefnu og norræna íhaldssamvinnu á evrópskum vettvangi.“

Eins og Heimildin greindi frá á þriðjudag er Miðflokkurinn orðinn formlegur meðlimur ECR-flokksins en Evrópuflokkurinn tilkynnti um aðild hans ásamt Sönnum Finnum í Finnlandi og Danmerkurdemókrötum í Danmörku. Flokkurinn er fjármagnaður af Evrópusambandinu að hluta en vill breyta ESB til að draga úr umsvifum þess með áherslum á fullveldi þjóðríkja. Á meðal annarra aðildarflokka eru Lög og regla í Póllandi, Bræðralag Ítalíu, sem er flokkur Giorgiu Meloni forsætisráðherra, og Svíþjóðardemókratar. Á heimsvísu eru …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Dr. Sigmundur Davíð og hjörð hans eru greinilega komin í AFAR vafasaman félagsskap
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

MAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvættingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðlileg tengsl við erlenda flokka og hugveitur
GreiningMAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvætt­ing­ur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðli­leg tengsl við er­lenda flokka og hug­veit­ur

Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son, formað­ur Mið­flokks­ins, sagði um­fjöll­un Heim­ild­ar­inn­ar um tengsl flokks­ins við MAGA-hreyf­ing­una „full­kom­inn þvætt­ing“ en stað­festi fund sinn með Re­públi­kön­um í Gauta­borg. Aðr­ir flokks­menn hafa nú sagt frá tengsl­um við ECR-flokk­inn og Her­ita­ge Foundati­on en eft­ir standa spurn­ing­ar um hver borg­aði.
Funduðu með einni umdeildustu hugveitu heims
StjórnmálMAGA-tengingar Miðflokksins

Fund­uðu með einni um­deild­ustu hug­veitu heims

Þing­menn Mið­flokks­ins fund­uðu með Her­ita­ge Foundati­on, hug­veit­unni sem samdi hina um­deildu áætl­un Proj­ect 2025 um end­ur­skipu­lagn­ingu banda­ríska rík­is­ins. Sig­ríð­ur And­er­sen, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, seg­ir erfitt að fá áheyrn, því hafi flokk­ur­inn leit­að til ráð­gjafa Nig­el Fara­ge til þess að tengj­ast banda­rísk­um stjórn­mál­um.

Mest lesið

Samúð dugar ekki til andspænis grimmdinni
6
ViðtalÁrásir á Gaza

Sam­úð dug­ar ekki til and­spæn­is grimmd­inni

Dr. Youn­is Al-Khatib er for­seti Rauða hálf­mán­ans í Palestínu. Hann lýs­ir að­stæð­um á vett­vangi um leið og hann kall­ar eft­ir því að al­þjóða­sam­fé­lag­ið stígi inn. Mann­úð­ar­sam­tök geti ekki leyst póli­tísk átök og sam­úð dugi skammt þeg­ar fólk þjá­ist. „Al­þjóða­sam­fé­lag­ið þarf að skilja að nú er mæl­ir­inn full­ur; það verð­ur að finna lausn og hún get­ur að­eins ver­ið póli­tísk.“

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Fulltrúi Íslands sat áfram meðan tugir gengu úr salnum undir ræðu Netanyahu
5
Stjórnmál

Full­trúi Ís­lands sat áfram með­an tug­ir gengu úr saln­um und­ir ræðu Net­anya­hu

Tug­ir full­trúa gengu úr saln­um þeg­ar Benja­mín Net­anya­hu, for­sæt­is­ráð­herra Ísra­els, hóf ræðu sína á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Full­trúi Ís­lands sat áfram í sæti lands­ins. Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra var á sama tíma á fundi til stuðn­ings Palestínuflótta­manna­hjálp SÞ.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
2
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár