Funduðu með einni umdeildustu hugveitu heims

Þingmenn Mið­flokks­ins fund­uðu með Heritage Foundation, hug­veit­unni sem samdi hina umdeildu áætlun Project 2025 um end­ur­skipu­lagn­ingu banda­ríska rík­is­ins. Sigríður Andersen, þing­maður Mið­flokks­ins, segir erfitt að fá áheyrn, því hafi flokk­ur­inn leitað til ráð­gjafa Nigel Farage til þess að tengj­ast banda­rískum stjórn­málum.

Funduðu með einni umdeildustu hugveitu heims
Vel heppnuð heim­sókn Sigríður Á. Andersen og aðrir í þing­flokki Mið­flokks­ins heim­sóttu meðal ann­ars eina umdeild­ustu hug­veitu Banda­ríkj­anna. Mynd: Af vef Sigríðar Andersen á Facebook

Sigríður Á. Andersen, þing­maður Mið­flokks­ins, upp­lýsir á sam­fé­lags­miðlum að flokk­ur­inn hafi meðal ann­ars heim­sótt banda­rísku hug­veit­una Heritage Foundation í októ­ber á síð­asta ári í sér­stakri heim­sókn þing­manna flokks­ins til Washington D.C. Heim­ildin greindi í morgun frá því að bæði Mið­flokkur og Sjálf­stæð­is­flokkur hafi greitt ráð­gjafa Nigel Farage, banda­ríkja­manni að nafni Zachary Freeman, fyrir að koma á fundum með banda­rísku áhrifa­fólki á síð­asta ári. 

Freeman vildi ekki gefa upp við hvaða aðila hann tengdi íslensku stjórn­mála­menn­ina en Sigríður upp­lýsir nú að það hafi meðal ann­ars verið hug­veitan sem stóð á bak við hið umdeilda stefnuplagg Project 2025. Þar er sett fram áætlun um hvernig færa má banda­rískt sam­fé­lag í íhalds­sam­ari átt, frá frjáls­lynd­ari og lýð­ræð­is­legri gildum, sem margir gagn­rýnendur telja and­lýð­ræð­is­lega.

Vara­for­seti Banda­ríkj­anna, J.D. Vance, hefur lýst Heritage Foundation …

Kjósa
52
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það er skítalygt af málinu.
    0
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Fyllsta ástæða er að skoða betur möguleg tengsl þessa íslenska stjórnmáafólks við erlent öfgafólk. Aðferðir Miðflokksins eru býsna líkar þeim stefnum sem öfgafólkið virðist sækja í. Þannig virðast hvorki mannréttindi né lýðræði vera hátt skrifað, auðræðið á öllu að ráða.
    Það er þeim til mikils vansa.
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

MAGA-tengingar Miðflokksins

GreiningMAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvætt­ingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðli­leg tengsl við erlenda flokka og hug­veitur

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, sagði umfjöllun Heim­ild­ar­innar um tengsl flokks­ins við MAGA-hreyf­ing­una „full­kom­inn þvætt­ing“ en stað­festi fund sinn með Repúblikönum í Gauta­borg. Aðrir flokks­menn hafa nú sagt frá tengslum við ECR-flokk­inn og Heritage Foundation en eftir standa spurn­ingar um hver borg­aði.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár