Loftslagsógnir steðja að nánast öllum börnum heimsins

Ný skýrsla UNICEF sýnir að nán­ast öll börn í heim­inum eru útsett fyrir í það minnsta einni ógn sem steðjar að vegna lofts­lags­breyt­inga. Fyrir 1,1 millj­arð barna steðjar hætta af þremur sam­verk­andi lofts­lagsógnum.

Loftslagsógnir steðja að nánast öllum börnum heimsins
Aukin hætta lofts­lagsógna Flest börn í heim­inum eru útsett fyrir lofts­lagsógnum. Mynd: Davíð Þór

Nánast öll börn í heim­inum eru útsett fyrir í það minnsta einni ógn sem steðjar að vegna lofts­lags­breyt­inga. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu UNICEF um áhættur tengdar lofts­lags­breyt­ingum gagn­vart börnum. Þar segir að líkur á lofts­lagsógnum hafi farið vax­andi hvert ár frá árinu 2015 og að búist sé við því að þær muni versna þar sem mark­mið um að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda séu ekki að ganga eftir.

Börn verða fyrir hlut­falls­lega verri áhrifum af völdum lofts­lagsógna þar sem lík­amar þeirra eru enn að þroskast og þau því ekki eins vel í stakk búin og full­orðið fólk til þess að takast á við lík­am­legt og and­legt álag sem fylgir slíkum ógnum.

Áhrifin eru gríð­ar­leg segir í skýrsl­unni, en þeirra gætir meðal ann­ars hvað varðar lík­am­lega og and­lega heilsu barna, aðgengi þeirra að menntun og lífslíkur. Þá steðjar hætta að fyrir útsett börn vegna loft­meng­unar og smit­sjúk­dóma á borð við …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Hitabylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur
Umhverfið

Hita­bylgjur ekki „fágætir atburðir“ lengur

„Það er mjög lík­legt að árið í ár verði eitt heitasta árið á öld­inni og næsta ár líka,“ segir Halldór Björns­son, haf- og veð­ur­fræð­ingur á Veð­ur­stofu Íslands. Sól­þyrstir Íslend­ingar þurfa að huga að því að skipu­leggja sum­ar­frí sín út frá hita­bylgjum. Yfir­stand­andi hita­bylgju í Evrópu má tengja við AMOC-velti­hringrás­ina segir vís­inda­mað­ur­inn Stefan Rahms­torf.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár