Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, sem tilkynnti í dag að hún hygðist hætta á Alþingi, á rétt á þingfararkaupi í sex mánuði. Nemur upphæð biðlaunanna 9.667.728 krónum.
Þar áður hafði hún fengið 3,1 milljón króna í greiðslur frá Alþingi á meðan hún stundaði eins árs MPA Global Leadership nám við Columbia háskóla. Saman ættu því biðlaun hennar og greiðslur á meðan námsleyfi stóð að duga fyrir skólagjöldum í náminu en þau voru í fyrra samtals 86.439 Bandaríkjadalir, andvirði rúmlega 10,7 milljóna króna samkvæmt gengisskráningu við upphaf Bandaríkjadvalar Áslaugar Örnu í júní í fyrra.
Raunar slagar upphæðin hátt upp í það sem Columbia-háskóli áætlar að nemendur þurfi að hafa á milli handanna á meðan þessu eins árs námi við skólann stendur. Sé tekið tillit til kostnaðar við leigu, mat, skólabækur, samgöngur og annan kostnað - að skólagjöldunum meðtöldum - þarf námsmaður að hafa um 122.481 dollara að mati skólans, eða um 15,2 milljónir …















































Athugasemdir