Ævilengd fólks með grunnskólamenntun hefur styst síðustu ár

Grunn­skóla­mennt­aður karl getur átt von á að lifa 8 árum skemur en háskóla­menntuð kona.

Ævilengd fólks með grunnskólamenntun hefur styst síðustu ár
Fólk á gangi Konur geta almnent vænst þess að lifa 3,2 árum lengur en karl­menn á Íslandi. Mynd: Golli

Ævilengd íslenskra karl­manna með grunn­skóla­menntun hefur styst um hálft ár síð­asta ára­tug, á meðan konur með háskóla­menntun lifa ári lengur en þá.

Nýjar tölur Hag­stof­unnar sýna að karl­menn með grunn­skóla­menntun geta frá 30 ára aldri vænst þess að lifa 8 árum skemur en háskóla­mennt­aðar konur.

Bæði konur og karlar með háskóla­menntun skera sig úr mann­fjöld­anum að því leyti að frá árinu 2011 hefur vænt ævi­lengd þeirra ekki lengst. Á meðan háskóla­menntað fólk af karl- og kven­kyni getur vænst þess að lifa um einu og hálfu ári lengur árið 2025 en 2011, eiga grunn­skóla­mennt­aðar konur von á að lifa hálfu áru skemur. 

Í færslu Hagstofu Íslands kemur fram að með­al­ævi­lengd karla á Íslandi var 81,0 ár árið 2025 og með­al­ævi­lengd kvenna 84,2 ár en með­al­ævi­lengd sýnir hve mörg ár ein­stak­lingur á að með­al­tali ólifuð við fæð­ingu ef miðað er við ald­urs­bundna dán­ar­tíðni mann­fjöld­ans.

Ævi­lengd­ar­munur kynj­anna hefur minnkað síð­ustu ára­tugi. Frá árinu 1990 hafa karlar bætt við sig rúm­lega fimm árum og konur tæp­lega fjórum í með­al­ævi­lengd. Ævilengd karla jókst um 0,1 ár frá árinu 2024 á meðan hún minnk­aði hjá konum um 0,1 á milli áranna 2024 og 2025.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Ég veit ekki hvort það verður endilega eftirsóknarvert að verða gamall eins og heimurinn er að þróast?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár