Milljóna bónusgreiðslur ofan á forstjóralaun

For­stjór­ar fyr­ir­tækja sem skráð eru í ís­lensku kaup­höll­ina fengu sum­ir millj­óna króna bónusa of­an á laun sín. Sam­heng­ið á milli bón­us­greiðslna og ár­ang­urs fyr­ir­tækj­anna er óljóst. Þannig fékk for­stjóri Icelanda­ir 9 millj­óna króna bón­us of­an á ríf­lega fimm millj­óna króna mán­að­ar­laun þrátt fyr­ir mik­ið tap.

Milljóna bónusgreiðslur ofan á forstjóralaun

Ellefu íslenskir forstjórar í kauphöllinni fengu milljóna króna bónusgreiðslur ofan á laun sín á síðasta ári. Þetta kemur fram í úttekt Heimildarinnar á launum og kjörum forstjóranna. Þessar viðbótargreiðslur voru stór hluti tekna sumra þeirra. 

Tekjur Ásgeirs Helga réðust til að mynda að verulegu leyti af árangurstengdum greiðslum en þegar kemur að bónusgreiðslum er hann í sérstöðu. Hann fékk 47 milljónir króna í árangurstengdar greiðslur frá Skel til viðbótar við 95 milljóna króna laun og 21 milljón í mótframlag í lífeyrissjóð. Þá fékk hann einnig um 9 milljóna króna greiðslu fyrir stjórnarformennsku í Kaldalóni, skráðu félagi þar sem Skel er stærsti fjárfestirinn.

Hagnaður Skeljar hefur verið töluverður en hann dróst saman á milli ára í fyrra um rúmlega 36 prósent, eða 2,5 milljarða króna. Árangurstengd greiðsla til Ásgeirs Helga jókst á sama tíma um 14,63 prósent, eða 6 milljónir króna. 

Gögnin gefa ekki ástæðu til að ætla að …

Kjósa
36
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna Ólafsdóttir skrifaði
    Þetta er fullkomlega óskiljanlegt og siðlaust.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
1
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár