Auknar áhyggjur af spillingu Donalds Trump í embætti

Banda­ríkja­for­seti hef­ur keypt hluta­bréf í fé­lög­um sem ákvarð­an­ir hans og orð hafa áhrif á. Dóms­mála­ráð­herra hans set­ur sam­an bóta­sjóð og refsi­leysi fyr­ir Trump­fjöl­skyld­una varð­andi skattsvik hef­ur ver­ið inn­leitt.

Auknar áhyggjur af spillingu Donalds Trump í embætti
Gagnrýna spillingu Chuck Schumer, demókrati frá New York og leiðtogi minnihlutans í öldungadeild Bandaríkjaþings, er hér á fréttamannafundi eftir vikulegan stefnumótunarhádegisverð með demókrötum í öldungadeildinni í þinghúsinu í Washington, DC í gær. Forysta demókrata í öldungadeildinni ræddi ýmis mál, þar á meðal nýlegan stuðning Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í aukakosningum í Texas og yfirheyrslu Todds Blanch, starfandi dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, hjá undirnefnd fjárlaganefndar öldungadeildarinnar, vegna umdeildra mála sem sögð eru til marks um hagsmunaárekstur forsetans. Mynd: AFP

Donald Trump Bandaríkjaforseti átti í viðskiptum með hlutabréf í 3.700 tilfellum upp á ígildi samtals milljarða króna á síðasta ársfjórðungi.

Í umfjöllun Bloomberg kemur fram að verðbréfamiðlarar á Wall Street séu slegnir yfir umfangi viðskiptanna. Fyrri forsetar hafa á síðustu áratugum annað hvort sett eignir sínar í sjóð, losað þær eða skapað armslengd með öðrum hætti. Varað er við því að alvarlegur hagsmunaárekstur eigi sér stað þegar forseti getur hagnast persónulega af ákvörðunum sínum í stöðu sem er í umboði almennings. 

Til viðbótar hefur  dómsmálaráðherra Trumps ákveðið að Trump-fjölskyldan fái friðhelgi vegna skattamála.

Keypt í félögum undir áhrifum af forsetavaldi

Viðskiptareikningur Trumps keypti í félögum eins og Nvida, Oracle, Microsoft, Boeing og Costco. Í hverju og einu félagi keypti hann fyrir um milljón Bandaríkjadala, eða um 124 milljónir íslenskra króna.

Á sama tíma heldur tengdasonur Trumps utan um hundruð milljarða viðskipti í Katar, Sádí-Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum samhliða …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Margur verður af aurum api eins og segir í Hávamálum, en er ekki almenningur sem lætur það viðgangast að örfáar hræður geti eignast ótakmarkaðann auð sem eru aparnir, með fullri virðingu fyrir öpum.
    0
  • Friðrik Helgason skrifaði
    Kemur alltaf betur og betur í ljós hversu mikill drullusokkur forseti BNA er
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Í miðju stríði hrósar Trump verkefnum sínum: „Tjörnin okkar er stærri en skýjakljúfar“
InnlentBandaríki Trumps

Í miðju stríði hrós­ar Trump verk­efn­um sín­um: „Tjörn­in okk­ar er stærri en skýja­kljúf­ar“

Á sama tíma og vopna­hlé við Ír­an hékk á blá­þræði og Re­públi­kana­flokk­ur­inn stóð frammi fyr­ir póli­tískri áhættu vegna kostn­að­ar stríðs­ins, sá Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti til þess að blaða­menn sem voru sam­an komn­ir á for­seta­skrif­stof­unni vissu hvað hon­um lá helst á hjarta: end­ur­bæt­ur á hinni sögu­frægu spe­g­iltjörn við Lincoln-minn­is­varð­ann.

Mest lesið

Þverstæður íslenskrar efnahagsstjórnar
5
Greining

Þverstæð­ur ís­lenskr­ar efna­hags­stjórn­ar

Er allt að fara í skrúf­una? Hei­mótt­ar­skap­ur í hugs­an­legri heimskreppu er ekki góð blanda. Hag­fræð­in sem fag­leg fræði­grein hef­ur tek­ið meiri fram­förum held­ur en ís­lenska krón­an á þess­ari öld og mögu­lega forð­að okk­ur frá ein­hverj­um krepp­um. Þau sem misst hafa af þró­un­inni vilja gjarn­an halda í gaml­ar kredd­ur ásamt gömlu góðu verð­tryggðu krón­unni.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Sáu sárin sem hún faldi
1
ViðtalElsku Embla

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.

Mest lesið í mánuðinum

Sáu sárin sem hún faldi
1
ViðtalElsku Embla

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár