Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?

Margir þeirra efstu á Hátekju­lista Heim­ild­ar­innar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skiptis hagnað. Kerfið gerir hins vegar auð­ug­ustu Íslend­ingum auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í félögum sínum án þess að greiða af þeim skatt. Ríkið borg­aði útsvar þeirra á list­anum sem ein­göngu voru með fjár­magnstekjur.

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
Björgólfur Thor Björg­ólfs­son Auð­ug­asti Íslend­ing­ur­inn borgar nú skatta á Ítalíu eftir að hafa flutt skatta­legt heim­il­is­festi frá Bret­landi. Mynd:

Hátekju­listi Heim­ild­ar­innar 2026 er kom­inn út og sýnir tekjur efsta 1% skatt­greið­enda á Íslandi, 3.600 ein­stak­linga, á síð­asta ári.

Ólíkt öðrum tekju­listum inni­heldur úttekt Heim­ild­ar­innar ekki aðeins launa­tekjur heldur einnig fjár­magnstekjur. Upp­lýs­ing­arnar feng­ust með ítar­legri leit Heim­ild­ar­innar í álagn­ing­ar­skrá Skatts­ins. Fjár­magnstekjur voru langstærsti hluti tekna þeirra sem efst eru á list­anum en til þeirra telj­ast meðal ann­ars vaxta­tekjur, leigu­tekjur, sölu­hagn­aður og arð­greiðslur.

Efst á Hátekju­list­anum er því oft auð­ugt fólk úr greinum eins og sjáv­ar­út­vegi eða fjár­festar sem fá reglu­lega háar arð­greiðslur eða selja eignir og taka hagn­að­inn út sem fjár­magnstekjur, sem bera 22% skatt.

Þannig er því hins vegar ekki háttað í ár. Er auð­ug­asta fólk Íslands að græða minna en áður? Eða er það að borga lægri skatta?

Skatta­kóng­ur­inn í ár er Daníel Sig­urðs­son, stofn­andi DS lausna. Daníel, sem er sér­fræð­ingur í krönum og lyft­urum, en einnig Íslands­meist­ari í rallíi, …

Kjósa
40
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PH
    Pétur Hilmarsson skrifaði
    Það væri mun réttari niðurstaða þegar um hjón/sambúðarfólk er að ræða að deila fjármagnstekjum með tveimur. Tökum dæmi um hjón þar sem bæði væru með 20 milljón í launatekjur og síðan 10 í fjármagnstekjur, annað hjónanna væri þá með 30 í samtals tekjur og væri þá ekki á þessum lista. Tökum síðan önnur hjón með nákvæmlega sömu tekjur en þar er annar aðilin með 27 miljjónir í launatekjur en makinn með 13 milljónur en sömu fjármagnstekjur og hin hjónin. Í þessu dæmi væru heildartekjur þess launahærri settar fram sem 37 milljónir og viðkomandi myndi lenda á listanum þrátt fyrir að tekjur þessara hjóna væru þær sömu og í fyrra dæminu. Þetta er augljós ónákvæmni og auðvelt væri fyrir Heimildina að laga þetta því þarna er margt fólk dregið fram ætti ekki að vera þarna og mörgu þykir e.t.v. það óþægilegt.
    0
  • Petrína Karlsdóttir skrifaði
    Greinin er ágæt en mér finnst þessi hátekjulisti mjög óaðgengilegnur og ónotendavænn á netinu. það er allt í belg og biðu og maður veit ekki hverjir eru þar og hverjir ekki. Þannig að ef maður veit ekki að hverju maður á að leita, sama eftir hverju ég hef farið, landið allt, landshlutar eða nafn ...
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu