„Borgarstjórinn“ Ari höfðar til unga fólksins með „skincare“ og „haul“

Ari Edwald, odd­viti Mið­flokks­ins, flakk­ar á milli stefnu­mála og æða í mynd­bönd­um á TikT­ok, þar sem hann kall­ar sig borg­ar­stjóra.

„Borgarstjórinn“ Ari höfðar til unga fólksins með „skincare“ og „haul“
Kvöld í lífi „borgarstjóra“ Ari birti í dag myndir af sér eina kvöldstund í gærkvöldi. Mynd: TikTok / Ari Edwald

Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, hefur farið frumlegar leiðir í kosningabaráttunni fyrir sveitarstjórnarkosningar, sem í sífellt meiri mæli færist á samfélagsmiðla.

„Skincare“Ari talar til yngri kvenkyns kjósenda og áhorfenda á TikTok með því að gera „húðrútínu“.

Í myndbandi sem hann birti í gær kynnir hann „Metta haul“, eða sýnir föt sem hann keypti hjá Metta sport, sem eru vinsæl hjá yngsta fólkinu.

Þá gerir hann húðrútínu, birtir myndir af sér í bol frá MettaSport bol og fer svo upp í rúm með Hello Kitty bangsa.

Ari hefur safnað tæplega 1.500 fylgjendum á TikTok frá því hann hóf útsendingar í lok mars.

Ari blandar gamni og alvöru í myndböndum sínum á TikTok. Í einu þeirra varar Ari við því að fólk sé orðið hrætt við að fara í Mjóddina og í Spöngina. Hann setur það í samhengi við fjölgun innflytjenda. Þá leggur Ari til að „auka öryggisgæslu á völdum svæðum í borginni“, til dæmis „með því að semja við lögregluna um að auka gæslu á kostnað borgarinnar“.

Þá varð Ara það á að brjóta umferðarlögin þegar hann keyrði eftir göngugötu og gagnrýndi skort á bílastæðum.

Þá drekkur Ari collab með loðhúfu í einu myndbandinu.

Í öðru myndbandi birtast Ari og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, með TikTok-trend sem snýst um að úrskurða hvað er „millionaire“, hvað „billionaire“ og hvað „not millionaire“.

Í nýju myndbandi svarar Ari gagnrýni Sönnu Magdalenu Mörtudóttur í kappræðum, þar sem hún sagði flokkinn gera innflytjendur „tortryggilega“, þar sem hann sýnir hvernig hann blandar saman skemmtiefni sem höfða á til ungs fólks og alvarlegum stjórnmálum.

Kosið verður til borgarstjórnar, og sveitarstjórna, á morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2026

Hver fékk hvað við samningaborðið í Reykjavík?
Greining

Hver fékk hvað við samn­inga­borð­ið í Reykja­vík?

Lang­flest lof­orð í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni koma frá Sjálf­stæð­is­flokkn­um. Við­reisn kem­ur við sögu á völd­um svið­um, einkum hús­næð­is- og skipu­lags­mál­um, en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn virð­ist minnst sýni­leg­ur. Nokk­ur lof­orð í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni er ekki að finna hjá nein­um flokk­anna þriggja, einkum þau sem snúa að smá­at­rið­um í rekstri borg­ar­inn­ar.

Mest lesið

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
2
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár