Deilt um hversu brýn umhverfismál eru í borginni

Ari Edwald var eini odd­vit­inn sem ekki var til­bú­inn að segja að umhverf­is­mál væru brýn í borg­inni. Bæði hann og Hildur Björns­dóttir sögðu Reykja­vík og Ísland standa fram­ar­lega í umhverf­is­málum, Einar Þor­steins­son gagn­rýndi „sýnd­ar­mennsku“ í lofts­lags­málum en Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, Silja Sóley Birg­is­dóttir og Kristinn Jón Ólafsson sögðu umhverf­is­málin sam­tvinnuð sam­göngum, hús­næði og skipu­lagi.

Einn á báti
Einn á báti Ari frá Mið­flokknum var eini odd­vit­inn sem taldi umhverf­is­mál ekki brýn í borg­ar­mál­unum. Hildur tók undir það með sem­ingi. Mynd: Golli

Ari Edwald, odd­viti Mið­flokks­ins, var eini odd­vit­inn í borg­inni sem ekki tók undir það að umhverf­is­mál væru brýn í borg­arpóli­tík á kapp­ræðum Heim­ild­ar­innar á þriðju­dag. Hann tók þó fram að hann teldi sig umhverf­is­sinn­aðan. „Auðvitað er ég umhverf­is­sinn­aður,“ sagði hann, en bætti við að horfa yrði til þess hvar Ísland og Reykja­vík stæðu í sam­an­burði við önnur ríki og borgir.

Í kapp­ræðum Heim­ild­ar­innar, sem fram fóru í beinni útsend­ingu frá Tjarn­ar­bíó, voru odd­vit­arnir beðnir um að gefa merki með handa­upp­rétt­ingu hvort þessi mál væru brýn í borg­inni. Ari var sá eini sem rétti ekki upp hönd en Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks, gerði það hik­andi. 

Umræð­urnar í heildÍ spil­ar­anum geta áskrif­endur horft á umræður um umhverf­is­mál frá upp­hafi til enda.

Þegar Ari útskýrði afstöðu sína vís­aði hann sér­stak­lega til end­ur­nýj­an­legrar orku. „Það er ekk­ert land sem er neitt nálægt okkur í að …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2026

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár