Ríkisstjórnin lækkar virðisaukaskatt á eldsneyti

Þrjár skamm­tíma­að­gerð­ir verða í gildi í sum­ar vegna óvissu og verð­hækk­ana á eldsneyti.

Ríkisstjórnin lækkar virðisaukaskatt á eldsneyti

„Förum inn í verðlækkunarsumar,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í morgun, þegar hún kynnti þrjár aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að mæta óvissu og verðhækkunum á olíu.

Stærsta aðgerðin er að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti úr 24% í 11% frá 1. maí næstkomandi.

„Markmið aðgerðanna er að fletja kúfinn vegna hækkananna,“ sagði Kristrún. „Með þessu vilja stjórnvöld setja sitt af mörkum og setja fordæmi fyrir fyrirtæki til að stemma stigum við verðhækkunum,“ sagði Kristrún.

Verðbólgan stendur nú í 5,4% og er jafnhá og hún var í september 2024. Hluti af verðhækkunum á eldsneyti hafa ekki náð inn í verðlagsmælingar og myndu að óbreyttu valda hækkun verðtryggðra lána, sem tveir þriðju lántakenda á húsnæðismarkaði eru með.

„Við höfum tekið eftir þeirri umræðu að það sé óhjákvæmilegt að hér verði mikil verðbólga á næstu mánuðum. Þá skapast umhverfi fyrir fólk, fyrirtæki, að hækka verð. Við ætlum að rjúfa þennan takt, fara í annan takt, ef svo má segja,“ sagði Kristrún. „ Verðbólguvæntingar skipta máli. Stundum þarf að detta í annan takt. Við ætlum að verða sá hvati, sem hefur þessa verðlækkun, fletur út kúfinn,“ sagði hún.

Þá verða söluaðilar skyldaðir til að skila verðlækkun að fullu til neytenda með lagafrumvarpi í næstu viku um vöktun á verðlagningu af hálfu Samkeppniseftirlitsins. Gert er ráð fyrir að verð á eldsneytislítra lækki um 30 krónur, að sögn Ingu Sæland menntamálaráðherra, en Kristrún sagði lækkunina vera 10 prósent, sem næmi þá 21 til 29 krónum á lítrann.

Í öðru lagi mun ríkisstjórnin styrkja verðlagseftirlit ASÍ um 15 milljónir vegna eftirlits með dagvöru og þjónustu.

Í þriðja lagi verði Ísland gert óháðara eldsneyti. „Við erum í mjög sterkri stöðu til að halda áfram rafvæðingu,“ sagði Kristrún.

Þannig verði 500 milljónir króna lagðar í fjölgun hleðslustöðva um land allt, við fjölbýlishús, gististaði og víðar. „Það eiga allir að geta hlaðið bílinn sinn.“ Kristrún sagði að nú ætti að „loka hleðslugatinu hringinn í kringum landið“ og draga úr „hleðslukvíða“.

Þetta eru hins vegar aðeins 200 milljóna króna viðbótarfjárframlög, þar sem áður voru 300 milljónir króna í orkusjóði ætlaðar í verkefnið.

Áður hefur ríkisstjórnin hins vegar lækkað verulega styrki til kaupa á rafbílum.

Kristrún sagði að lækkun matarskatts eða virðisaukaskatts almennt hefði verið rædd, en ekki ákveðin.

Aðgerðirnar taka gildi 1. maí og renna út 31. ágúst.

Í síðasta mánuði tilkynntu meðal annars norsk og sænsk stjórnvöld um lækkun á sköttum á eldsneyti.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Fulltrúi Íslands sat áfram meðan tugir gengu úr salnum undir ræðu Netanyahu
2
Stjórnmál

Full­trúi Ís­lands sat áfram með­an tug­ir gengu úr saln­um und­ir ræðu Net­anya­hu

Tug­ir full­trúa gengu úr saln­um þeg­ar Benja­mín Net­anya­hu, for­sæt­is­ráð­herra Ísra­els, hóf ræðu sína á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna. Full­trúi Ís­lands sat áfram í sæti lands­ins. Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra var á sama tíma á fundi til stuðn­ings Palestínuflótta­manna­hjálp SÞ.
Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskatt
4
Stjórnmál

Sig­mund­ur Dav­íð vill af­nema erfða­fjárskatt

Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son og sjö aðr­ir þing­menn reyna nú aft­ur að af­nema erfða­fjárskatt. Þau vísa með­al ann­ars til OECD en stofn­un­in hef­ur einnig fært sterk rök fyr­ir skatt­lagn­ingu þeg­ar um stór­an arf er að ræða. Það á til að mynda við um það þeg­ar eig­in­kona Sig­mund­ar fékk rúm­an millj­arð króna í fyr­ir­fram­greidd­an arf sem fór síð­ar inn í af­l­ands­fé­lag­ið Wintris.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ásgeir Brynjar Torfason
5
Pistill

Ásgeir Brynjar Torfason

Und­ir pils­faldi Banda­ríkj­anna

Hvernig lít­ur það út að hafa hafn­að að­ild­ar­við­ræð­um ut­an frá? Með því að úti­loka þann kost, hvernig bregð­umst við hér þá við breytt­um heimi? Ein leið er að taka landa­korti banda­ríska for­set­ans, sem sett hef­ur fána­lit­ina á yf­ir­ráða­svæð­ið sitt, sem gríni. Hvorki Kan­ada né Mexí­kó taka því gríni. Eyj­ar­skeggj­ar á Jamaíku og Kúbu eru lík­leg­ast hrædd­ir. Kannski er það kost­ur að vera bara kok­hraust.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
2
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár