Meta talið hafa blekkt notendur í Cambridge Analytica-málinu

Kvið­dómur í Nýju-Mexíkó komst að þeirri nið­ur­stöðu að Meta hefði gefið not­endum vill­andi upp­lýs­ingar um per­sónu­vernd og miðlun per­sónu­upp­lýs­inga. Ríkið krefst sekta sem gætu numið millj­örðum dala.

Meta talið hafa blekkt notendur í Cambridge Analytica-málinu

Kvið­dómur í Nýju-Mexíkó komst í dag að þeirri nið­ur­stöðu að Meta, móð­ur­fé­lag Facebook, hefði blekkt not­endur um per­sónu­vernd. Málið teng­ist Cambridge Analytica-hneyksl­inu, að því er banda­rískir fjöl­miðlar greina frá.

Cambridge Analytica var póli­tískt ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæki sem reynd­ist hafa aflað per­sónu­upp­lýs­inga millj­óna Facebook-not­enda með óeðli­legum hætti til að beina póli­tískum aug­lýs­ingum að þeim, einkum í tengslum við for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum árið 2016 og þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una um Brexit.

Upp­ljóstr­anir á sínum tíma leiddu í ljós að fyr­ir­tækið keypti gögn sem safnað hafði verið með per­sónu­leika­prófs­for­riti sem nefnd­ist „thisisyourdigitallife“. Um 270 þús­und manns not­uðu for­ritið, sem jafn­framt fékk aðgang að upp­lýs­ingum um vini þeirra.

Með þeim hætti náði gagna­söfn­unin að lokum til um 87 millj­óna Facebook-not­enda um allan heim.

Facebook vissi í des­em­ber 2015 að Cambridge Analytica hefði keypt gögnin en greindi ekki frá því fyrr en í apríl 2018, eftir að upp­ljóstr­ari steig fram. Í kjöl­farið braust út umfangs­mikið póli­tískt hneyksli.

Nið­ur­staða kvið­dóms­ins …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár