Verðbólga mælist 5,4% í mars – eldsneyti og matvara hækka mest

Verð­bólga hækkar fjórða mán­uð­inn í röð og hefur ekki mælst hærri síðan í sept­em­ber 2024.

Vísitala neyslu­verðs hækk­aði um 0,55 pró­sent milli mán­aða í mars og hefur því hækkað á árs­grund­velli um 5,4 pró­sent. Þetta er fjórði mán­uð­ur­inn í röð sem verð­bólgan hækkar.

Þetta kemur fram í nýjum gögnum Hag­stof­unnar. Þar segir einnig að í mars hafi vísi­tala neyslu­verðs án hús­næðis um 0,67 pró­sent og hefur verð­bólga án hús­næðis á árs­grund­velli því verið 4,9 pró­sent.

Verð­hækk­anir í mars skýr­ast einkum af hækk­unum á elds­neyti og mat­vöru.

Verð á mat og óáfengum drykkjum hækk­aði um 0,7 pró­sent og hafði 0,11 pró­sent áhrif á vísi­töl­una. Þá hækk­aði bens­ín­verð um 5,8 pró­sent og dísel­verð um 6,9 pró­sent, með sam­tals 0,15 pró­sent áhrif á vísi­töl­una.

Ný mæl­ing vísi­töl­unnar, sem miðuð er við verð­lag í mars, verður notuð til verð­trygg­ingar í maí 2026.

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Það er nú ekki rétt hjá þér Aðalsteinn Kjartansson að verðbólgan hafi hækkað fjóra mánuði í röð. Verbólgan stóð í stað í febrúar, var þá 5,2% eins og í janúar.
    Endilega viðhafið ábyrga blaðamennsku. Ég vil helst ekki borga fyrir annað.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár