Noregur hækkar stýrivexti í 4,5 prósent

Nor­egs­banki hækk­aði stýri­vexti um 0,25 pró­sentu­stig í morgun til að vinna gegn verð­bólgu. Bankinn segir að frek­ari vaxta­hækk­anir kunni að reyn­ast nauð­syn­legar.

Nor­egs­banki til­kynnti í dag að stýri­vextir hefðu verið hækk­aðir um 0,25 pró­sentu­stig í 4,50 pró­sent til að vinna gegn verð­bólgu. Bankinn sagði jafn­framt að frek­ari vaxta­hækk­anir gætu reynst nauð­syn­legar.

„Verð­bólga hefur verið yfir mark­miði í nokkur ár. Með því að hækka stýri­vexti stuðlum við að því að draga úr verð­bólgu,“ sagði Ida Wolden Bache, seðla­banka­stjóri Noregs, í yfir­lýs­ingu.

„Líklega verður nauð­syn­legt að halda stýri­vöxtum háum um tíma og nefndin er reiðu­búin að hækka þá frekar ef þess ger­ist þörf til að ná verð­bólgu niður í tveggja pró­senta mark­miðið innan hæfi­legs tíma,“ sagði hún og vís­aði þar til pen­inga­stefnu- og fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndar bank­ans.

Norska krónan styrkt­ist eftir til­kynn­ing­una enda gera hærri vextir norskt skulda­bréf og aðrar norskar eignir eft­ir­sókn­ar­verð­ari fyrir erlenda fjár­festa.

Hag­fræð­ingar höfðu verið ósam­mála um hvort bank­inn myndi hækka vexti.

„Líklega verður nauð­syn­legt að halda stýri­vöxtum háum um tíma“
…
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár