Noregur lækkar skatta vegna orkukreppunnar

Elds­neyt­is­skattar verða lækk­aðir tíma­bundið í Noregi, en á Íslandi vilja stjórn­völd ekki bregð­ast við orku­krepp­unni með lækkun á álögum.

Noregur lækkar skatta vegna orkukreppunnar
Norrænir for­sæt­is­ráð­herrar Noregur og Svíþjóð lækka elds­neyt­is­skatta vegna stríðs­ins í Íran. Mynd: AFP

Noregur mun tíma­bundið lækka skatta á bensín og dísilolíu til að bregð­ast við hækk­andi verði þar sem stríðið í Mið­aust­ur­löndum truflar orku­fram­boð á heims­vísu, að því er rík­is­stjórnin greindi frá í dag.

Frá og með 1. apríl verður skattur á bensín lækk­aður um 4,41 norskar krónur (56,6 íslenskar krónur) á lítra og á lítra af dísilolíu um 2,85 norskar krónur (36,6 íslenskar krónur), sagði rík­is­stjórnin í yfir­lýs­ingu.

Nú þegar hafa Svíar til­kynnt um tak­mark­aða og tíma­bundna skatta­lækkun á elds­neyti. Sama er þó ekki uppi á ten­ingnum á Íslandi.

Ríkisstjórnin klofnar

Norska þingið greiddi atkvæði með lækk­un­inni þann 26. mars, þrátt fyrir að rík­is­stjórnin væri á móti til­lög­unni og end­aði í minni­hluta í mál­inu þar sem einn af fimm flokkum í stjórn­ar­sam­starf­inu – Mið­flokk­ur­inn – greiddi atkvæði með stjórn­ar­and­stöð­unni.

„Sam­komu­lag um fjár­lög er gert til að virða það,“ sagði Jens Stol­ten­berg fjár­mála­ráð­herra, úr Verka­manna­flokknum sem var á móti til­lög­unni, við rík­is­út­varpið NRK.

„Við þurfum að setj­ast niður með sam­starfs­flokkum okkar og tryggja að svona staða komi ekki upp aftur,“ sagði hann.

Skatta­lækk­an­irnar eiga einnig við um stein­ol­íur sem not­aðar eru við fisk­veiðar og veiðar, sagði rík­is­stjórnin.

Þingið áætl­aði að skatta­lækk­unin myndi kosta um 6,3 millj­arða norskra króna eða sem nemur 80 millj­örðum íslenskra króna.

Leiðandi í rafbílavæðingu

Noregur, stærsti olíu- og gas­fram­leið­andi Evrópu á eftir Rúss­landi, er með flesta raf­bíla á mann í heim­inum, en þeir voru um 32 pró­sent af bíla­flota lands­ins í des­em­ber 2025. Til sam­an­burðar eru aðeins 9% bif­reiða á Íslandi raf­bílar, þrátt fyrir að Ísland fram­leiði enga olíu og not­ist nán­ast ein­göngu við end­ur­nýj­an­lega orku utan sam­gangna.

Dísil­bílar voru 31,8 pró­sent af flot­anum í Noregi, sam­an­borið við 23,9 pró­sent fyrir bens­ín­bíla og 12,6 pró­sent fyrir ýmsa tvinn­bíla.

Nán­ast all­ir ný­skráð­ir bíl­ar í Nor­egi 2025 voru raf­magns­bíl­ar, en á Ís­landi var hlut­fall­ið að­eins 34%.

Rík­is­stjórn Spánar til­kynnti í síð­ustu viku um lækkun orku­tengdra skatta til að bregð­ast við „sér­stökum aðstæðum“ sem mynd­uð­ust við Írans­stríðið og skert fram­boð olíu vegna þess.

Íslensk stjórn­völd hafa ekki viljað lækka álögur á elds­neyti vegna orku­krepp­unnar. Líklegt er að verð­bólga auk­ist vegna hækk­andi olíu­verðs, en vegna sér­að­stæðna á íslenskum hús­næð­is­lána­mark­aði mun verð­bólga leiða til þess að lán flestra hús­næð­is­eig­enda hækka með verð­trygg­ingu.

„Nei, við höfum ekki verið að skoða það. Við erum auð­vitað í sam­tali um aðgerðir með aðilum vinnu­mark­að­ar­ins en þetta hefur ekki verið uppi á borð­inu eins og er,“ sagði Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra við RÚV í síð­ustu viku.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Norðmenn raka saman peningum í olíuverðshækkuninni.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár