Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar

Kanadísk-haí­tíski rit­höf­und­ur­inn Thelyson Orelien neitar að hafa notað gervi­greind við gerð fyrstu skáld­sögu sinnar. Ásakanir um rit­stuld í eldri skrifum hans hafa einnig komið fram og útgef­andi hans í Kanada hefur frestað kynn­ing­ar­ferð hans.

Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar
Sönnun Orelien seg­ist ætla að leggja fram gögn sem sanni að hann hafi sjálfur skrifað bók­ina. Mynd: JOEL SAGET / AFP

For­svars­menn Goncourt-verð­laun­anna, virt­ustu bók­mennta­verð­launa Frakk­lands, greindu frá því í dag að met­sölu­skáld­saga kanadísk-haí­tíska rit­höf­und­ar­ins Thelyson Orelien hefði verið tekin af lista yfir bækur sem koma til greina til verð­laun­anna. Ákvörð­unin kemur í kjöl­far full­yrð­inga á net­inu um að bókin hafi verið skrifuð með gervi­greind.

Ákvörð­unin sé tekin „af vilja til að varð­veita heil­indi Goncourt-verð­laun­anna og aka­dem­í­unnar sjálfrar, en meg­in­hlut­verk hennar er að efla og heiðra bók­menntir skrif­aðar af konum og körlum,“ sagði í yfir­lýs­ingu Goncourt-aka­dem­í­unar.

Orelien, sem er 38 ára, hefur vakið mikla athygli í hinum frönsku­mæl­andi bók­mennta­heimi. Ákvörð­unin um að fjar­lægja fyrstu skáld­sögu hans, Það var ann­að­hvort þetta eða deyja, af list­anum kemur í lok storma­samrar viku þar sem nafn­lausar ásak­anir um bók­ina hafa gengið manna á milli.

Hann neitar að hafa notað gervi­greind og hefur gefið í skyn að her­ferðin gegn sér eigi sér meðal ann­ars kyn­þátta­for­dóma að rótum og sé „til­raun til að þagga niður í …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Þegar gervigreindin tekur yfir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár