Ríkisstjórnin skiptir um kúrs

Horf­ið verði frá stefnu sem fel­ur í sér mann­fjölg­un án hag­vaxt­ar.

Ríkisstjórnin skiptir um kúrs
Kristrún Frostadóttir Kynnti í gær fyrirhugaða atvinnustefnu. Mynd: Golli

Ríkisstjórnin kynnir í dag nýja atvinnustefnu og aðgerðaáætlun vegna hennar. Þetta er í fyrsta sinn sem opinber atvinnustefna er kynnt og með henni á að hverfa frá fyrri stefnu. Aðgerðaáætlunin er í 35 liðum.

„Við erum mjög stoltar af þessu. Það er rosaleg vinna sem liggur á bakvið þetta,“ sagði Kristrún á blaðamannafundi rétt í þessu. „Þetta er bara konkret,“ sagði hún.

Lítill sem enginn hagvöxtur

Í atvinnustefnunni er tekið fram að árangur hagstjórnarinnar hafi verið lítill síðustu ár. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir í ávarpi að horfið verði frá fyrri atvinnustefnu.

„Hagvöxtur á mann hefur verið afar takmarkaður á undanförnum 5 árum og lakari á Íslandi en í helstu samanburðarlöndum. Brýnt er að snúa þeirri þróun við,“ segir þar. „Hagvöxtur sem drifinn er af fólksfjölgun skapar álag á opinbera þjónustu og alla helstu innviði. Mikilvægt er að stuðla að því að þróun atvinnulífs sé í jafnvægi við innviði og umhverfi.“

„Þá hefur hlutfall innflytjenda á Íslandi tvöfaldast á einum áratug og farið úr um 9% í 19%. Þetta hefur samfélagslegar afleiðingar,“ segir Kristrún í ávarpi atvinnustefnunnar.

Í aðgerðaráætluninni er kveðið á um orku- og innviðaumbreytingu, öflugan mannauð, eflingu vísinda og nýsköpunar og sátt um öflugar auðlindagreinar.

Þar er boðað að 1,1 milljarður króna verði lagður í þróun gervigreindar og„markvissan stuðning stjórnvalda við rannsóknir, þróun og innleiðingu tæknilausna til kolefnisföngunar við uppruna losunar“.

Þá tilkynnti ríkisstjórnin samtímis um lækkun á virðisaukaskatti eldsneytis úr 24% í 11% frá 1. maí til 31. ágúst til að bregðast við verðhækkunum eftir Íransstríðið.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Nú ættu aðilar vinnumarkaðarins, að því opinbera meðtöldu, að sýna þá skynsemi og þor, að semja um að falla frá öllum umsömdum launahækkunum nema á lægstu laun. Að viðhalda innistæðulausum kaupmætti, eða jafnvel auka hann, er ekkert annað en meiri olía á verðbólgubálið. Eins og ætíð, kemur það verst niður á þeim launalægstu og ungu fólki að reyna að koma sér þaki yfir höfuðið. Þetta er fullreynt. Táknrænt innlegga í málið væri að þingmenn, ráðherrar, sveitarstjórnarfulltrúar og bæjarstjórar lækkuðu laun sín samtímis.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Í minningu afastráksins
1
Viðtal

Í minn­ingu afastráks­ins

Gunn­ar Rand­vers­son starf­aði í ára­tugi sem tón­list­ar­kenn­ari, hef­ur skrif­að ljóð og smá­sagna­safn. Áföll­in hafa mót­að líf hans. Ell­efu ára gam­all horfði hann á föð­ur sinn deyja, 21 árs missti hann móð­ur sína og fyr­ir þrem­ur ár­um lést fjög­urra ára gam­all dótt­ur­son­ur hans. Í ljóða­bók­inni Hvernig er sökn­uð­ur á lit­inn? eru ljóð skrif­uð í minn­ingu litla drengs­ins. Eft­ir frá­fall hans leit­aði Gunn­ar í kirkj­una.
Mikilvægi hvíldar vill oft gleymast
5
Viðtal

Mik­il­vægi hvíld­ar vill oft gleym­ast

Hvíld er ekki lúx­us held­ur líf­fræði­leg nauð­syn, seg­ir Bene­dikt Jó­hanns­son, sér­fræð­ing­ur í klín­ískri sál­fræði. Svefn og hvíld séu ein af grunnstoð­um góðr­ar heilsu og að lík­ams­klukk­an kalli á hvíld yf­ir dag­inn. Rann­sókn­ir sýni að hvíld skerpi ein­beit­ingu, minni og starfs­þrek. Bene­dikt tel­ur að vafa­samt hafi ver­ið að af­leggja kaffi­tíma á vinnu­stöð­um, því starfs­fólk­ið þurfi eft­ir sem áð­ur að kúpla að­eins frá vinnu og end­ur­næra sig.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Í minningu afastráksins
3
Viðtal

Í minn­ingu afastráks­ins

Gunn­ar Rand­vers­son starf­aði í ára­tugi sem tón­list­ar­kenn­ari, hef­ur skrif­að ljóð og smá­sagna­safn. Áföll­in hafa mót­að líf hans. Ell­efu ára gam­all horfði hann á föð­ur sinn deyja, 21 árs missti hann móð­ur sína og fyr­ir þrem­ur ár­um lést fjög­urra ára gam­all dótt­ur­son­ur hans. Í ljóða­bók­inni Hvernig er sökn­uð­ur á lit­inn? eru ljóð skrif­uð í minn­ingu litla drengs­ins. Eft­ir frá­fall hans leit­aði Gunn­ar í kirkj­una.

Mest lesið í mánuðinum

„Ég kom úr mjög nánu, fallegu og stóru samfélagi kynlífsverkafólks“
2
Viðtal

„Ég kom úr mjög nánu, fal­legu og stóru sam­fé­lagi kyn­lífs­verka­fólks“

Eft­ir út­skrift úr há­skóla sótti Logn um rúm­lega hundrað störf en ekk­ert kom út úr því. Hán átti góða vini í kyn­lífs­vinnu sem hún leit­aði til. Síð­ar stofn­aði hán Rauðu regn­hlíf­ar­ina, sam­tök kyn­lífs­verka­fólks á Ís­landi. „Sam­stað­an sem kann að eiga sér stað með­al kyn­lífs­verka­fólks er eitt það fal­leg­asta og dýr­mæt­asta sem ég hef upp­lif­að í mínu lífi.“

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár