Formaður bankaráðs Seðlabankans skýtur á bankastjórana

Bolli Héð­ins­son, formað­ur banka­ráðs Seðla­bank­ans, beindi við­kvæmri spurn­ingu til stjórn­enda við­skipta­bank­anna á árs­fundi bank­ans í dag.

Formaður bankaráðs Seðlabankans skýtur á bankastjórana
Bolli Héðinsson Var kjörinn formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands í júní í fyrra. Mynd: Golli

Formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands, hagfræðingurinn Bolli Héðinsson, beindi sjónum að einni lykilspurningu hagkerfisins í fyrstu ársfundarræðu sinni við upphaf ársfundar bankans í dag.

Bolli fjallaði um sjálfvirknivæðingu í verslunum og bönkum, sem veldur hagræðingu í rekstri þeirra og færir verkefnin yfir til viðskiptavina, sem samkvæmt kenningum hagfræðinnar eiga að lækka verð á vöru og þjónustu.

Bolli benti á innleiðingu sjálfsafgreiðslukassa í verslunum. „Þannig sjáum við sjálf núna um það sem starfsfólk verslunarinnar sinntu áður. Og því hægt að fækka í starfsliði búðanna, en við það ætti vöruverð að hafa lækkað. Hvort það er raunin, veit ég ekki.“

Íslensku matvörukeðjurnar hafa hagnast í vaxandi mæli á síðustu árum og risið hátt í kauphöllinni. Þannig hefur forstjóri Haga, sem rekur Bónus, lýsti því að meðbyr sé í rekstri matvöruverslana, en á sama tíma hefur verðlag á matvörum og drykk hækkað umfram almenna verðbólgu, eða um 5,8% á einu ári.

Beindi spurningu til bankastjóra

Bolli nýtti sér nærveru bankastjóra stóru viðskiptabankanna og spurði sambærilega um rekstur bankanna, en þeir högnuðust sameiginlega um nærri 94 milljarða króna í fyrra.

„Einu sinni fylltust afgreiðslusalir bankanna um hver mánaðarmót þegar viðskiptavinir mættu með gíróseðlanna til að standa í skilum fyrir eindaga. Nú eru afgreiðslusalirnir nær horfnir og það sem meira er, viðskiptavinirnir sjá sjálfir um að greiða gíróseðlana, eða ígildi þeirra, heima hjá sér við fartölvuna eða snjallsíma,“ sagði Bolli.

„Af því að hér eru margir stjórnendur viðskiptabankanna, þá spyr ég: Hefur sú fækkun starfsmanna sem óhjákvæmilega hefur orðið með því að viðskiptavinir bankanna hafa sjálfir tekið að sér að sinna þeim störfum, sem áður voru innan þeirra, hefur þessum sparnaði í rekstri verið veitt til viðskiptavina þeirra? Annað hvort í formi lægri gjalda eða hærri innlánsvaxta.“

Landsbankinn ákvað nýverið að borga 35 milljarða króna í arð af starfsemi sinni, en hagnaður bankans í fyrra nam 104 milljónum króna á hverjum einasta degi ársins. Sá arður rennur þó í ríkissjóð.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra boðaði í ræðu sinni á fundinum að ríkisstjórnin myndi kynna efnahagsaðgerðir á morgun.

Þá fór Ásgeir Jónsson aðalseðlabankastjóri yfir sögu þjóðarsáttarinnar, verðbólgumarkmiða og launahækkana almennings. Ásgeir benti á að verðbólga hefði verið sú sama á Íslandi og í Evrópu eftir covid-faraldurinn, en að launþegar annars staðar í Evrópu hefðu tekið á sig kaupmáttarrýrnun, ólíkt Íslendingum sem hefðu hækkað laun meira. Hann gagnrýndi hótanir forsprakka verkalýðsfélaganna, sem hefðu komið í veg fyrir lækkun kaupmáttar og orðið olía á verðbólgubál.

Ásgeir sagði að peningastefnunefnd Seðlabankans myndi „að óbreyttu“ þurfa að hækka stýrivexti meira, eftir að hafa hækkað þá um 0,25% í mars.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Grétar Reynisson skrifaði
    Vitaskuld er þetta „skófluskrílnum” að kenna.
    Það hefur alltaf verið þannig. Þetta veit Kaupþings-klappstýran fyrrverandi mæta vel.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búist við atkvæðagreiðslu um Hormússund í öryggisráðinu
5
Erlent

Bú­ist við at­kvæða­greiðslu um Horm­ússund í ör­ygg­is­ráð­inu

Ör­ygg­is­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna greið­ir lík­lega at­kvæði í dag um út­þynnta til­lögu Persa­flóa­ríkja um að sér­hverju landi verði heim­ilt að beita hervaldi til að opna fyr­ir sigl­ing­ar um Horm­ússund. Olíu­verð hef­ur snar­hækk­að eft­ir að Ír­an­ir svo gott sem lok­uðu sund­inu eft­ir árás­ir Banda­ríkj­anna og Ísra­els á land­ið.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Fólk er hrætt”
1
Viðtal

„Fólk er hrætt”

„Ef þú býrð í landi þar sem ver­ið er að fylgj­ast með þér, þá er það veru­leiki sem þú þarft að díla við,” seg­ir Magnús Þorkell Bern­harðs­son, Mið-Aust­ur­landa­fræð­ing­ur við Williams Col­l­e­ge í Banda­ríkj­un­um og gesta­pró­fess­or við guð­fræði- og trú­ar­bragða­fræði­deild HÍ – sem ný­ver­ið flutti hér á landi fyr­ir­lestra, ann­an um Ír­an og eld­fimt ástand vegna inn­rás­ar þar, hinn um að­þrengt aka­demískt frelsi í Banda­ríkj­un­um.

Mest lesið í mánuðinum

Greiddu fyrrverandi oddvita 7 milljónir eftir að Framsókn fékk bæjarstjórastólinn
4
Stjórnmál

Greiddu fyrr­ver­andi odd­vita 7 millj­ón­ir eft­ir að Fram­sókn fékk bæj­ar­stjóra­stól­inn

Ný­stofn­að fé­lag Ág­ústs Bjarna Garð­ars­son­ar, fyrr­ver­andi odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafnar­firði, fékk greiðsl­ur fyr­ir ráð­gjafa­störf eft­ir að flokks­bróð­ir hans, Valdi­mar Víð­is­son, tók við sem bæj­ar­stjóri. Ráð­gjafa­störf fyrr­um bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæj­ar, Har­ald­ur Sverris­son, hóf­ust í tíð Rósu Guð­bjarts­dótt­ur, flokks­syst­ur hans.
Frjálshyggjumenn úr viðskiptalífinu gefa „þekktum hugsuðum“ sviðið
5
Innlent

Frjáls­hyggju­menn úr við­skipta­líf­inu gefa „þekkt­um hugs­uð­um“ svið­ið

Stjórn­end­ur Reykja­vík Fin­tech og Bæj­ar­ins Beztu Pyls­ur hafa stofn­að við­burða­fyr­ir­tæki eft­ir að hafa hald­ið fyr­ir­lestra með Jor­d­an Peter­son. Fyrstu við­burð­irn­ir eru með Frosta Sig­ur­jóns­syni um lofts­lags­mál og Bjórkast­inu, hlað­varpi þar sem stjórn­end­ur kenna sig við öfga­hægri og „kyn­þátt­ar­aun­sæi“.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár