Formaður bankaráðs Seðlabanka Íslands, hagfræðingurinn Bolli Héðinsson, beindi sjónum að einni lykilspurningu hagkerfisins í fyrstu ársfundarræðu sinni við upphaf ársfundar bankans í dag.
Bolli fjallaði um sjálfvirknivæðingu í verslunum og bönkum, sem veldur hagræðingu í rekstri þeirra og færir verkefnin yfir til viðskiptavina, sem samkvæmt kenningum hagfræðinnar eiga að lækka verð á vöru og þjónustu.
Bolli benti á innleiðingu sjálfsafgreiðslukassa í verslunum. „Þannig sjáum við sjálf núna um það sem starfsfólk verslunarinnar sinntu áður. Og því hægt að fækka í starfsliði búðanna, en við það ætti vöruverð að hafa lækkað. Hvort það er raunin, veit ég ekki.“
Íslensku matvörukeðjurnar hafa hagnast í vaxandi mæli á síðustu árum og risið hátt í kauphöllinni. Þannig hefur forstjóri Haga, sem rekur Bónus, lýsti því að meðbyr sé í rekstri matvöruverslana, en á sama tíma hefur verðlag á matvörum og drykk hækkað umfram almenna verðbólgu, eða um 5,8% á einu ári.
Beindi spurningu til bankastjóra
Bolli nýtti sér nærveru bankastjóra stóru viðskiptabankanna og spurði sambærilega um rekstur bankanna, en þeir högnuðust sameiginlega um nærri 94 milljarða króna í fyrra.
„Einu sinni fylltust afgreiðslusalir bankanna um hver mánaðarmót þegar viðskiptavinir mættu með gíróseðlanna til að standa í skilum fyrir eindaga. Nú eru afgreiðslusalirnir nær horfnir og það sem meira er, viðskiptavinirnir sjá sjálfir um að greiða gíróseðlana, eða ígildi þeirra, heima hjá sér við fartölvuna eða snjallsíma,“ sagði Bolli.
„Af því að hér eru margir stjórnendur viðskiptabankanna, þá spyr ég: Hefur sú fækkun starfsmanna sem óhjákvæmilega hefur orðið með því að viðskiptavinir bankanna hafa sjálfir tekið að sér að sinna þeim störfum, sem áður voru innan þeirra, hefur þessum sparnaði í rekstri verið veitt til viðskiptavina þeirra? Annað hvort í formi lægri gjalda eða hærri innlánsvaxta.“
Landsbankinn ákvað nýverið að borga 35 milljarða króna í arð af starfsemi sinni, en hagnaður bankans í fyrra nam 104 milljónum króna á hverjum einasta degi ársins. Sá arður rennur þó í ríkissjóð.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra boðaði í ræðu sinni á fundinum að ríkisstjórnin myndi kynna efnahagsaðgerðir á morgun.
Þá fór Ásgeir Jónsson aðalseðlabankastjóri yfir sögu þjóðarsáttarinnar, verðbólgumarkmiða og launahækkana almennings. Ásgeir benti á að verðbólga hefði verið sú sama á Íslandi og í Evrópu eftir covid-faraldurinn, en að launþegar annars staðar í Evrópu hefðu tekið á sig kaupmáttarrýrnun, ólíkt Íslendingum sem hefðu hækkað laun meira. Hann gagnrýndi hótanir forsprakka verkalýðsfélaganna, sem hefðu komið í veg fyrir lækkun kaupmáttar og orðið olía á verðbólgubál.
Ásgeir sagði að peningastefnunefnd Seðlabankans myndi „að óbreyttu“ þurfa að hækka stýrivexti meira, eftir að hafa hækkað þá um 0,25% í mars.
















































Það hefur alltaf verið þannig. Þetta veit Kaupþings-klappstýran fyrrverandi mæta vel.