Grínast með að hertaka Kúbu

Víðtækt raf­magns­leysi skekur Kúbu og heil­brigð­is­kerfið er í upp­námi vegna orku­skorts. Banda­ríkja­for­seti end­ur­tók fyr­ir­ætl­anir um að her­taka Kúbu og upp­skar hlátur við­staddra. Hann kall­aði Hor­mússund „Trump-sund“.

Grínast með að hertaka Kúbu
Donald Trump Hefur sagt það verða heiður sinn að „taka Kúbu“. Mynd: AFP

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, ítrek­aði í gær að „Kúba væri næst“ um leið og hann vís­aði á bug áhyggjum af því að nýlegar hern­að­ar­að­gerðir Banda­ríkj­anna myndu kosta hann póli­tískan stuðn­ing.

Komm­ún­ista­stjórn Kúbu hefur sætt vax­andi þrýst­ingi frá Trump, sem setti á olíu­bann í jan­úar og velti fyrir sér að „taka“ landið.

Á fjár­fest­inga­ráð­stefn­unni FII Priority í Miami, sem er studd af Sádi-Arabíu, sagði Trump að Make America Great Again (MAGA) hreyf­ing hans vildi „styrk“ og „sigur“ og vís­aði til áhlaups­ins í jan­úar þar sem banda­rískar her­sveitir hand­tóku Nicolas Maduro, leið­toga Venes­ú­ela.

„Ég byggði upp þennan frá­bæra her. Ég sagði: „Þið þurfið aldrei að nota hann,“ en stundum verður maður að nota hann,“ sagði Trump.

„Og Kúba er næst, svo þið vitið það. En látið eins og ég hafi ekki sagt það.“

Trump til­greindi ekki hvað hann hygð­ist gera varð­andi Kúbu og sagði fjöl­miðlum að „hunsa þessa yfir­lýs­ingu“ áður en hann end­ur­tók „Kúba er næst“ við hlátur áhorf­enda.

Í ræðu sinni í gær kom repúblikan­inn og for­set­inn einnig með stríðn­is­lega athuga­semd þar sem hann kall­aði Hor­mússund „Trump-sund“.

Miguel Diaz-Canel, leið­togi Kúbu, sagði í síð­ustu viku að sér­hver utan­að­kom­andi árás­ar­að­ili myndi mæta „óbrjót­an­legri mót­spyrnu“, jafn­vel þótt landið hefði tvisvar í síð­ustu viku orðið fyrir raf­magns­leysi á lands­vísu.

Kúba hefur verið í við­skipta­banni Banda­ríkj­anna frá því skömmu eftir bylt­ingu Fidels Castro árið 1959. Sam­skiptin hafa batnað á síð­ustu árum en hafa versnað aftur síðan Trump tók við emb­ætti á sínu öðru kjör­tíma­bili, en for­set­inn leit­ast við að herða tök stjórnar sinnar á Rómönsku Ameríku.

Hátt­settur kúbverskur erind­reki hafði áður sagt að stjórn­völd í Havana væru reiðu­búin að halda áfram við­ræðum við stjórn­ina í Washington, en úti­lok­aði að ræða breyt­ingar á stjórn­mála­kerfi lands­ins.

Tveggja segl­báta sem voru hluti af alþjóð­legri skipa­lest sem flutti lækn­inga­vörur, mat, sól­ar­raf­hlöður og aðrar vörur til Kúbu er saknað og hafði ekk­ert hafði spurst til þeirra í gær.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár