Kristrún svarar fyrir vextina: „Það sagði enginn að þetta yrði auðvelt“

For­sæt­is­ráð­herra seg­ir eft­ir vaxta­hækk­un og verð­bólgu­skot að rík­is­stjórn­in hafi „freist­ast til að fagna of snemma“. Hún kall­ar eft­ir stuðn­ingi þjóð­ar­inn­ar við að „taka ábyrgð á stöð­unni í sam­ein­ingu“.

Kristrún svarar fyrir vextina: „Það sagði enginn að þetta yrði auðvelt“
Kristrún Frostadóttir Segir að bakslag hafi orðið í efnahagsmálum. Mynd: Golli

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, sem hafði fyrir alþingiskosningarnar 2024 sagt að Samfylkingin hefði plan og myndi „negla niður vextina og verðbólguna“, svarar í dag fyrir þá stöðu að stýrivextir Seðlabanka Íslands voru hækkaðir í kjölfar þess að verðbólgan fór upp í 5,2% og er sú hæsta frá því áður en ríkisstjórnin tók við.

„Ég viðurkenni það að eftir lægstu verðbólgumælingu í 5 ár síðasta haust og 2% lækkun stýrivaxta þá vorum við vongóð. Og við freistuðumst til að fagna of snemma á þeim tímapunkti,“ segir Kristrún í færslu á Facebook. Hún viðurkennir að „nú hafi orðið bakslag“. „Við tökum ábyrgð á þeirri stöðu og herðum okkur enn frekar,“ segir hún.

Hluti af rökstuðningi peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands fyrir vaxtahækkun nú er mikil hækkun olíuverðs, vegna stríðs Ísraels og Bandaríkjanna gegn Íran, sem er líkleg til að valda víðtækum verðhækkunum ef hún varir lengur. Önnur röksemd var hækkun launa á Íslandi.

Að sögn Kristrúnar eru verðhækkanir og þar með verðbólga á breiðum grunni.

„Allir armar hagstjórnarinnar þurfa nú að standa við sitt og vinna að sama marki. Kjarasamningar eru í gildi sem setja launaþróun skorður. Ríkisstjórnin mun gera sitt í fjármálaáætlun og með fyrstu hallalausu fjárlögunum í að verða áratug. Við höldum áfram að taka stórar ákvarðanir til að laga afkomuna,“ segir hún.

Þá vísar hún til lítils hagvaxtar á síðustu árum, sem nær ekki umfram mannfjölgun.

„Við höfum unnið hörðum höndum að atvinnustefnu en síðustu ár hefur hér mælst 0% hagvöxtur á mann. Það er ekki sjálfbært fyrir samfélag sem leggur áherslu á mikla velferð og góð laun. Næsta hagvaxtarskeið verður að byggja á öðrum grunni en áherslur síðustu ára. Þessu viljum við breyta og erum að breyta með mótun fyrstu atvinnustefnu Íslands sem verður kynnt á næstu vikum.“

Kristrún hvetur fyrirtæki til að „halda aftur af álagningu og leggja sitt af mörkum til að stuðla að efnahagslegum stöðugleika“.

„Það sagði enginn að þetta yrði auðvelt. En við getum gert þetta. Með því að taka ábyrgð á stöðunni í sameiningu. Við munum vinda ofan af þessu bakslagi og leggja grunn að betra jafnvægi til lengri tíma í íslensku efnahagslífi,“ segir Kristrún.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Ef við viljum gera róttækar breytingar á hagkerfinu erum við betur sett utan ESB“
4
ViðtalHorft til Evrópu

„Ef við vilj­um gera rót­tæk­ar breyt­ing­ar á hag­kerf­inu er­um við bet­ur sett ut­an ESB“

Full­veldi Ís­lands og sjálf­stæði í pen­inga- og rík­is­fjár­mál­um þarf að vera til stað­ar ef vinstri stjórn kemst til valda og vill gera rót­tæk­ar breyt­ing­ar, seg­ir Jök­ull Sól­berg Auð­uns­son, stjórn­ar­mað­ur í Til vinstri við ESB. Hann vill horfa til BRICS-ríkj­anna og var­ar við mögu­leik­an­um á her­skyldu inn­an ESB.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskt kollagen framleitt á Blönduósi
5
Nýsköpun

Ís­lenskt kolla­gen fram­leitt á Blönduósi

Norð­an heiða, nán­ar til­tek­ið á Blönduósi, er ís­lenskt kolla­gen fram­leitt. Um er að ræða fyr­ir­tæk­ið Prot­is sem nýt­ir sér verk­smiðju Vil­ko þar á slóð­um, en um er að ræða sömu eig­enda­hópa að miklu leyti. Það er ým­is­legt í far­vatn­inu hjá þeim, með­al ann­ars sam­starf við drykkjar­vöru­fram­leið­end­ur er­lend­is sem eig­and­inn bind­ur mikl­ar von­ir við.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár