Seðlabankinn hækkar vexti

Stýri­vextir Seðla­banka Íslands hækka um 0,25 pró­sentu­stig. Illa hefur gengið að ná tökum á verð­bólgu, sem hefur hækkað síð­ustu tvo mán­uði.

Seðlabankinn hækkar vexti
Banka­stjóri Ásgeir Jónsson er seðla­banka­stjóri. Mynd: Golli

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands ákvað á fundi sínum í dag að hækka meg­in­vexti bank­ans um 0,25 pró­sentu­stig. Meg­in­vextir, sem eru vextir á sjö daga bundnum inn­lánum, verða því 7,50 pró­sent .

Þrír nefnd­ar­menn studdu til­lög­una en tveir vildu ganga lengra og hækka vexti um 0,5 pró­sentu­stig, sem bendir til auk­innar spennu innan nefnd­ar­innar um hversu hart eigi að bregð­ast við stöð­unni.

Samkvæmt yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar benda flestir hag­vísar nú til þess að hægt hafi á efna­hags­um­svifum. Þrátt fyrir það hefur verð­bólga tekið við sér á ný. Þar vegur þungt hækkun opin­berra gjalda og áhrif kjara­samn­ings­bund­inna launa­hækk­ana sem komu til fram­kvæmda í byrjun árs.

Und­ir­liggj­andi verð­bólga hefur jafn­framt auk­ist og er nú sú mesta í rúmt ár. Þá hafa verð­bólgu­vænt­ingar hækkað, sem nefndin telur sér­stak­lega var­huga­vert.

Í yfir­lýs­ing­unni er einnig bent á að alþjóð­legir þættir hafi aukið verð­bólgu­þrýst­ing. Miklar hækk­anir á olíu og öðrum hrá­vörum í kjöl­far auk­innar spennu við Persaflóa eftir loft­árásir Banda­ríkja­manna og Ísraels á Íran hafi þegar haft áhrif á mark­aði og ýtt undir hærri verð­bólgu­vænt­ingar. Dragist átökin á lang­inn gæti verð­bólga auk­ist enn frekar.

Nefndin varar einnig við því að háar verð­bólgu­vænt­ingar geti leitt til þess að end­ur­skoð­un­ar­á­kvæði kjara­samn­inga verði virkjuð síðar á árinu, sem myndi auka enn frekar verð­bólgu­þrýst­ing.

Að mati pen­inga­stefnu­nefndar er því nauð­syn­legt að herða taum­hald pen­inga­stefn­unnar þrátt fyrir vís­bend­ingar um hæg­ari hag­vöxt. Nefndin seg­ist jafn­framt reiðu­búin til frek­ari aðgerða ef þurfa þykir til að ná verð­bólgu aftur að mark­miði.

Fram kemur að næstu ákvarð­anir muni áfram ráð­ast af þróun verð­bólgu, verð­bólgu­vænt­inga og efna­hags­um­svifa.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    Afhverju er húsnæði enn í dag inní neysluvístölu rekningi á Íslandi?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár