Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í dag að NATO væri að gera „heimskuleg mistök“ varðandi Íran, eftir að aðildarríki hernaðarbandalagsins höfnuðu að mestu beiðni hans um aðstoð við að opna Hormússund aftur fyrir olíuflutningum.
„Ég tel að NATO sé að gera mjög heimskuleg mistök,“ sagði Trump við fréttamenn þegar hann tók á móti forsætisráðherra Írlands í forsetaskrifstofunni. „Þegar þeir segja að það (Íran) hafi verið ógn, en við ætlum ekki að hjálpa, þá finnst mér þeir vera mjög vitlausir.“
Trump sagði í viðtali við Financial Times um helgina að slæm framtíð blasti við NATO ef bandalagsríkin kæmu ekki til hjálpar á Persaflóa til að tryggja olíuflutninga.
Bandaríkin hófu stríð gegn Íran 28. febrúar með fulltingi Ísraels og hafa gefið mismunandi og stundum misvísandi skýringar á stríðsrekstrinum. Ein skýringin hefur verið aðgerð til að stöðva mögulega þróun Írans á kjarnorkuvopnum, en áður hafði Trumps sagst hafa gjöreyðilagt getu þeirra til þess í loftárásum í júní í fyrra. Önnur skýringin hefur verið áhersla á stjórnarskipti, en Trump-stjórnin hefur farið fram og til baka með hana. Sú þriðja er skýring Trumps að hann hafi haft á tilfinningunni að Íran myndi gera árás á Bandaríkin. Fjórða skýringin er að tækifæri hafi skapast til að drepa marga æðstu ráðamenn Írans í einni árás, þar sem upplýsingar hefðu fengist um að þeir væru samankomnir.
Hver sem skýringin er hafði Bandaríkjastjórn ekki samráð við bandamenn sína um stríðið, eða þá Bandaríkjaþing, heldur einungis Ísrael.


















































Athugasemdir (1)