Heritage Foundation fundar með evrópsku hægrafólki

Heritage Foundation hefur lagt áherslu á að funda með leið­togum hægri­flokka í Evrópu, meðal ann­ars íslenskum, með það að mark­miði að styrkja tengls sín við flokk­anna og að breyta evr­ópskri lög­gjöf í sam­ræmi við banda­rísk gildi.

Heritage Foundation fundar með evrópsku hægrafólki
Forseti Banda­ríkj­anna Donald Trump heillar víða og á öfl­uga bak­hjarla sem boða erindi hans víða. Mynd: Shutterstock

Hug­veitan Heritage Foundation hefur stór­aukið áhrif sín í Evrópu á síð­ustu tólf mán­uðum, sam­kvæmt grein­ingu banda­rísku stjórn­mála­frétta­síð­unni Politico. Þar var greint frá því í nóv­em­ber síð­ast­liðnum að hug­veitan hefði átt fjöl­marga einka­fundi við áhrifa­fólk í fjar­hægri­flokkum frá meðal ann­ars Ung­verja­landi, Tékk­landi, Spáni, Frakk­landi og Þýska­landi. Síðasta árið hefur hug­veitan einnig átt sjö fundi með með­limum Evr­ópu­þings­ins miðað við einn fund á síð­ustu fimm árum þar á undan. Mark­miðið er að inn­ræta hug­mynda­fræði MAGA í sem flesta stjórn­mála­flokka í Evrópu undir for­merkj­unum MEGA, eða „Make Europe Great Again“ og að laga­setn­ingar í sam­ræmi við gildi MAGA verði lagðar fram og sam­þykktar. 

Sami farastjóri í báðum ferðum

Á þennan lista bæt­ast nú Íslend­ingar en Mið­flokk­ur­inn fór á fund með Heritage Foundation og greindi þing­maður flokks­ins, Sigríður Á. Andersen, frá því á sam­fé­lags­miðlum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fór einnig í ferð á vegum sama fyr­ir­tækis, en for­svars­maður þess, Zachary Freeman, hefur einnig unnið Nigel …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÓRÁ
    Óli Rúnar Ástþórsson skrifaði
    Það er með ólíkindum að svona illgresi, sem nærist á mannvonsku og heimsku, skuli geta þrifist á meðal okkar. Að 20% þjóðarinnar geti fylgt sér um svona illsku, sem trúir því m.a. að Helförin hafi ekki átt sér stað, banna eigi þungunarrof og að staða kvenna sé best á bak við eldavélina. Það vantar bara vefjarhöttinn á Sigmund og Snorra.
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

MAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvættingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðlileg tengsl við erlenda flokka og hugveitur
GreiningMAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvætt­ingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðli­leg tengsl við erlenda flokka og hug­veitur

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, sagði umfjöllun Heim­ild­ar­innar um tengsl flokks­ins við MAGA-hreyf­ing­una „full­kom­inn þvætt­ing“ en stað­festi fund sinn með Repúblikönum í Gauta­borg. Aðrir flokks­menn hafa nú sagt frá tengslum við ECR-flokk­inn og Heritage Foundation en eftir standa spurn­ingar um hver borg­aði.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár